þriðjudagur, 31. júlí 2007

Tók ekki nema 15 daga!!!!

Ég er himinlifandi í dag, því að í dag flytjum við inn í "kompuna" ;) tek myndir seinna.
Einnig er ég líka himinlifandi því í dag fékk ég líka þær fréttir að ég FÉKK vinnuna.
Ég gæti byrjað á morgun en þar sem að það þarf að ganga frá samningum og sækja um kennitölu, (tekur samt viku eða meira að fá kennitölu, maður þarf að panta tíma hjá skattmann, og fara í viðtal), þannig að ég byrja að vinna á fimmtudaginn hjá Rockwell Automation (fyrir þá forvitnu þá getið þið skoðað heimasíðuna þeirra hér http://www.rockwell.com )
Ég er ekki búin að finna út fullt heimilisfang á nýju "íbúðinni" þannig að þið verðið að láta póstkortin, bréfin og pakkana sem þið ætlið að senda okkur bíða enn um stund.
Það er ekki internettenging heima, þannig að núna þarf ég að fara á næsta restaurant eða bar til að komast á netið ;) ekki slæmt það. Veit ekki hvernig þetta verður á nýja vinnustaðnum, hvort þeir leyfa msn eða persónulegtvafr á netinu. En kemur allt í ljós.
Læt heyra í mér fljótlega.

2 ummæli:

Guðrún K. sagði...

Þið eruð svo miklir snillingar
til hamingju með þetta allt saman!! knús og kossar !!

Nafnlaus sagði...

Æ innilega til hamingju með íbúðina og vinnuna!! Eigum við semsagt bara að tala saman á dönsku héreftir hehehe :)

Bestu kveðjur til ykkar beggja, já og knús líka...