föstudagur, 29. júní 2007

Síðasta bloggið úr selinu

Hæ hæ og hó hó
það er orðið ansi tómlegt, bergmálar í íbúðinni, lokaspretturinn eftir við þrifin núna á næstu klst og þá er þetta komið.
Bíllinn kemur í fyrramálið, þá mun hlaðið og brunað norður í land og svo í bæinn aftur síðdegis.
Kveðja úr selinu.

þriðjudagur, 26. júní 2007

Síðustu fregnir

Hætt í vinnunni - Skrýtið
Pakka - gengur þokkalega en leiðinlegt
Þrífa - hef áhyggjur af því á morgun
Flytja - gerist á laugardaginn

Er samt í stresskastinu, get ekki étið, drekk bara vatn því allt annað vill leita út aftur á miður skemmtilegann hátt.
Í höfðinu hljómar sama spurningin aftur og aftur "Hvern ands..... ertu búin að gera núna stelpa?"

En að öðru fórum í sjóstangaveiði frá Keflavík á sunnudaginn í geggjuðu veðri. Eitt það skemmtilegasta sem ég hef gert í langan tíma.
Bjó til myndasíðu á netinu, setti inn myndir frá atburðinum. Mun reyna að setja inn myndir í framtíðinni frá lífinu í útlöndum. Veit ekki alveg hvernig það mun ganga en reyni samt.
Linkur á síðuna hérna til hliðar.

föstudagur, 22. júní 2007

Dagurinn í dag

Jæja þá er hann runninn upp, síðasti vinnudagurinn.
Virtist vera svo langt í burtu, en þessir 3 mánuðir flugu hjá.
Ég er búin að selja, þvottavél, ískáp, örbylgjuofn og finna X-boxinu góðan stað.
Græjurnar, glösin og fleira smálegt er einnig búið að finna stað.
Mun gera mér ferð norður í land í stórum bíl eftir viku með annað sem fer ekki í sorpu.
Lífinu pakkað og hent. Nýtt líf handan við hornið.

föstudagur, 15. júní 2007

Blendnar tilfinningar

Vá hvað tíminn líður hratt þessa dagana. Það er eiginlega ekki hemja, á bara eftir að vinna eina viku í viðbót og þá hefst gamanið.
Ég er á fleygiferð í tilfinningarússíbananum þessa dagana, spennan og gleðin eiga samt vinninginn en það örlar alveg á smá hræðslu og ofsahræðslu inn á milli og ég tala nú ekki um kvíðahnútinn.
En hvað um það, vitið þið um einhvern sem vantar þvottavél fyrir lítinn pening eða langar í X-box vél + nokkra leiki? Endilega ef þið vitið um einhvern látið mig vita ;)

þriðjudagur, 5. júní 2007

Nú árið er liðið :D

Elsku vinir, frænkur og akureyringarnir mínir takk fyrir kveðjurnar í gær :D
Það er alltaf svo gaman að eiga afmæli, og já Guðný ég man sko eftir 13 ára afmælinu á Benidorm, svaka banquette og svo hin ógleymanlega setning "á ég að borða þetta??? með sinnepi???" þá var nú gaman :D finnst eins og það hafi gerst í gær en það eru víst 20 ár síðan!!!