þriðjudagur, 31. júlí 2007

Tók ekki nema 15 daga!!!!

Ég er himinlifandi í dag, því að í dag flytjum við inn í "kompuna" ;) tek myndir seinna.
Einnig er ég líka himinlifandi því í dag fékk ég líka þær fréttir að ég FÉKK vinnuna.
Ég gæti byrjað á morgun en þar sem að það þarf að ganga frá samningum og sækja um kennitölu, (tekur samt viku eða meira að fá kennitölu, maður þarf að panta tíma hjá skattmann, og fara í viðtal), þannig að ég byrja að vinna á fimmtudaginn hjá Rockwell Automation (fyrir þá forvitnu þá getið þið skoðað heimasíðuna þeirra hér http://www.rockwell.com )
Ég er ekki búin að finna út fullt heimilisfang á nýju "íbúðinni" þannig að þið verðið að láta póstkortin, bréfin og pakkana sem þið ætlið að senda okkur bíða enn um stund.
Það er ekki internettenging heima, þannig að núna þarf ég að fara á næsta restaurant eða bar til að komast á netið ;) ekki slæmt það. Veit ekki hvernig þetta verður á nýja vinnustaðnum, hvort þeir leyfa msn eða persónulegtvafr á netinu. En kemur allt í ljós.
Læt heyra í mér fljótlega.

laugardagur, 28. júlí 2007

Nýjar myndir, ZomerCarnaval í Rotterdam

Vá þetta er lengsta skrúðganga sem ég hef orðið vitni að.
Mætt fyrir utan hótelið kl 13:00 og vá stuðið!!!!!!!! klukkan er núna 16:45 og þetta er ekki ennþá búið. Varð að fara inn og hvíla lúin bein og tæma minniskortið í myndavélinni. :)
Vona að þið hafið gaman að því það eru nýjar myndir á myndasíðunni.
Salsa og samba kveðjur frá Röggu og Fergal.

föstudagur, 27. júlí 2007

Tíðindi....

Jæja viðtalið var ekkert svo hroðalegt. Fæ samt ekkert að vita fyrr en eftir helgi.
En góðu fréttirnar eru að við erum búin að fá íbúð. Þetta er stúdíóíbúð með eldunaraðstöðu en þurfum að deila baðherbergi með einni konu. Ódýr leiga og fínt til að byrja með.
Ekkert grand en nóg fyrir okkur tvö.

Tilbúin

Jæja hérna sit ég "All dressed up" á hótelherberginu, klukkan ekki nema hálf 9. Ég á að mæta kl 10 og ég er stressuð, úff.
En anda djúpt, hugsa jákvætt.
Læt ykkur vita hvernig gekk seinna í dag.
Túdelú

fimmtudagur, 26. júlí 2007

Í Rotterdam notar fólk regnhlífar... líka þegar það hjólar!?!

Síðustu dagar hafa verið tíðindalausir. Verð að viðurkenna að ég er orðin svoldið frústreruð varðandi íbúðamálin, virðist ekkert vera að gerast. En þá er bara að draga andann djúpt og trúa því að það leysist fljótt.
Ég vona að dagurinn á morgun hafi góðar fréttir í för með sér, ég er sem sagt að fara í atvinnuviðtalið kl. 10 í fyrramálið (8 á íslenskum tíma, þið hugsið til mín yfir morgunverðinum eða á leiðina í vinnuna).

Ég fann dönsku í bókabúðinni. Er búin að sitja yfir henni síðustu daga og hlusta á geisladiskana sem fylgdu með. Það er alveg ótrúlegt hvað þetta rifjast fljótt upp það litla sem maður kunni. Bý að því að hafa útskrifast sem stúdent af málabraut á sínum tíma, þannig að ég kann aðeins meira en bara grunnskóla dönskuna.

Á laugardaginn er sumarkarnival í Rotterdam, skilst á þeim sem ég hef talað við (sem eru alveg tveir, þrifakonan á hótelinu og strákurinn í móttökunni) að þetta sé þvílík skemmtun, mini útgáfa af suður amerískum kjötkveðjuhátíðum. Fjaðrir, dill og fjör. Við erum svo heppin að skrúðgangan og skemmtunin fer fram m.a. í götunni sem hótelið stendur við, þannig að það verður ekki langt að í stuðið.

þriðjudagur, 24. júlí 2007

Ég er gengin upp að öxlum!!!

Fergal byrjaði að vinna í gær, líkar mjög vel. Ekki samt alveg eins líbó á því hérna og á Íslandi segir hann, því hérna má ekki tala í vinnunni. Þ.e.a.s. þú mátt ekki hætta að vinna til að tala, þú mátt tala við manninn sem vinnur við hliðina á þér, ekki við þann sem labbar framhjá. Þannig er nú það.

Fólk í Rotterdam þarf að vakna snemma til að fara í vinnu, ég ákvað að fara á fætur með Fergal þannig að við værum á sama róli varðandi svefn. Þetta þýðir að ég vakna kl. 5:30 á morgnana. Hehehehehehehehe ég sem átti erfitt með að vakna fyrir kl. 9.
En svona er þetta, nýjir siðir í nýju landi.
Og meira af nýjum siðum, held ég sé búin að labba meira síðastliðna viku heldur en öll árin þar á undan. Var að gantast um þetta við Fergal í gær, að ég gæti ekki verið eins og fólk er flest og farið í ræktina til að komast í form.... Nei Ragga flytur til útlanda til að labba.


Er búin að leita logandi ljósum um allan miðbæinn af almennilegri bókabúð til að verða mér út um danskar bækur til að lesa. Engin bókabúð, alveg sama hvert ég leit. Varð heldur betur hissa þegar ég kom svo úr bænum í gær og var að lesa upplýsingabæklingana sem við erum með á hótelinu. Það er ein risastór..... það er hægt að horfa á hana hvaðan sem er úr bænum, ekki nema 11 hæðir. En málið er að ég var búin að ákveða að þetta væri svona sex shop (hollendingar eru nefnilega svo liberal) og að ég hefði ekkert þangað að gera fyrr en ég væri komin í varanlegt húsnæði. Búðin heitir Selexyz Donner og ég, Ragga sem á ekki rafmagnstannbursta, gat lesið sex shop út úr þessu.

laugardagur, 21. júlí 2007

Stuttbuxum og ermalausum bol......



Fórum í smá ferðalag í dag. Fórum til Den Haag til að komast á Scheveningen ströndina. Risa strönd í klukkutíma fjarlægð með lest + sporvagni frá Rotterdam. Lágum nú lítið í sólbaði þar sem að það vindaði mikið frá Norðursjónum og sólin faldi sig reglulega á bak við skýin. Samt nógu mikil sól fyrir mig til að verða rauð á öxlunum og verða bitin á alla vegana 3 stöðum af moskító eða einhverju álíka.



Margt sem ég gerði í fyrsta skipti á ævinni í dag.
1. ferðaðist í 2ja hæða lest (Double decker train)
2. ferðaðist með sporvagni
3. framdi fyrsta lögbrotið í Hollandi x2
4. tók vitlausa lest og endaði í einhverju smáþorpi sem heitir Gouda (eins og osturinn)

Ekki samt missa ykkur yfir lögbrotunum, komst ekki upp um mig, en fór í sporvagninn án þess að borga, héldum að það væri miðasalakall um borð, en enginn kom og við út á áfangastað. Það sama gerðist á leiðinni til Rotterdam frá Gouda, búið að loka miðasölunni á lestarstöðinni og enginn rukkaði okkur. Var samt með lífið í lúkunum því miðakallinn í vitlausulestinni hélt yfir okkur þvílíka ræðu, skildum ekki orð, sögðum bara, "já, já".
Morgundeginum ætlum við að eyða í að kynna okkur metro/strætó kerfið í Rotterdam. Það er víst ekki nóg að þekkja bara eina götu og eina lestarstöð.

föstudagur, 20. júlí 2007

God dag, snakker du dansk.

Þetta eru búnir að vera skrýtnir dagar fram að þessu, hef aldrei eytt eins miklum tíma á hótelherbergjum eins og þessa síðustu daga. Við höfum ekki einu sinni farið á barinn hvað þá meira, en málin standa þannig núna að við erum í ferlinu að sækja um íbúð hjá borginni, allar aðrar íbúðaleigur og leigumiðlanir vilja fá 3ja mánaða fyrirframgreiðslur + mánaðarleigu + prósentur sem er yfirleitt 19% af mánaðarleigunni þar sem að við erum nýkomin til landsins. En hjá borginni borgum við 1500 evrur fyrirfram og mánaðarleigan 400 - 500 evrur eftir það. Það besta sem við höfum séð hingað til.
Fergal byrjar að vinna á mánudaginn og ég er að fara í atvinnuviðtal hjá Rockwell Automation á föstudaginn í næstu viku. Er með svoldið í maganum yfir því þar sem að þeir eru að leita að dönskumælandi einstaklingi og auminginn ég setti í ferilskránna að ég væri mellufær í dönsku ;) (orðaði það samt betur). En alla vegana þá var búið að skipuleggja símafund á dönsku, þriðjudaginn í næstu viku, ég ætlaði heldur betur að æfa mig, fara í bókabúðina og reyna að finna bækur á dönsku og svo liggja á internetinu, dönsku síðunum. Hvað haldið þið, þeir misskildu eitthvað og hringdu í morgun..... úfffffff kvíðahnúturinn..... enginn undirbúningur og algjörlega óviðbúin..... vona að ég hafi ekki klúðrað þessu en á ennþá að mæta í viðtalið á föstudaginn.... þið krossleggið fingur fyrir mig.
Núna ætla ég að borða rod grod med flode í allar máltíðir fram á föstudag
Bestu kveðjur til Íslandsins góða

PS. er komin með hollenskt númer +31 638112891 þannig að ef þið viljið láta heyra í ykkur þá mun ég svara ;)

þriðjudagur, 17. júlí 2007

Hávaxnir hollendingar og víðáttur

Jæja þá erum við komin til Hollands. Veðrið er gott, heitt en frekar rakt. Þetta er svona "þrjársturturádag" veður. Minnir nokkuð á sumarið í USA.

Ferðin gekk vel fyrir sig. Við gistum fyrstu nóttina á hóteli í nágrenni flugvallarins í Eindhoven. Komum frekar seint, svöng og þreytt. Allt lokað nema McDonalds þannig að miðnætursnarlið var BigMac og franskar.
Þegar upp á herbergi var komið, þá henntum við okkur í rúmmið, kveiktum á sjónvarpinu og létum þreytuna líða úr okkur.

Innan skamms fórum við að heyra mjög sérkennilegt hljóð, sem ágerðist, þetta var eins og kurr í gömlum ískáp. Eftir um það bil klukkustund þá gáfumst við upp og hringdum í móttökuna og kvörtuðum því þetta var orðið frekar pirrandi. Þeir ætluðu að athuga málið, tíminn leið og hljóðið hélt áfram.... klukkan að ganga 3 um nótt.... pirringurinn að ná hámarki, hringdum aftur í móttökuna, þeir búnir að athuga málið og heyrðu ekkert í herbergjunum í kringum okkur. Þeir sendu upp öryggisvörð, ung kona kom og bankaði... heyrði hljóðið, fór að brosa og spurði "eruð þið með rafmagns tannbursta" Við alveg "ha.... nei" fórum að athuga málið betur. Hljóðið kom úr annarri ferðatöskunni. Oh my god... ekkert smá neyðarlegt... konan fór.
Við lærðum á þessu: "Takið batteríin úr hjálpartækjunum áður en að langt er að stað í ferðalag" :D

Erum komin til Rotterdam núna, verðum á hóteli næstu tvær nætur.
Sálin er létt og tilhlökkun til að takast á við þau verkefni sem fyrir okkur liggja.
Finna Vinnu
Finna Húsnæði.

mánudagur, 9. júlí 2007

Brottför 16. júlí 2007 kl. 15:40