Jæja þá erum við komin til Hollands. Veðrið er gott, heitt en frekar rakt. Þetta er svona "þrjársturturádag" veður. Minnir nokkuð á sumarið í USA.
Ferðin gekk vel fyrir sig. Við gistum fyrstu nóttina á hóteli í nágrenni flugvallarins í Eindhoven. Komum frekar seint, svöng og þreytt. Allt lokað nema McDonalds þannig að miðnætursnarlið var BigMac og franskar.
Þegar upp á herbergi var komið, þá henntum við okkur í rúmmið, kveiktum á sjónvarpinu og létum þreytuna líða úr okkur.
Innan skamms fórum við að heyra mjög sérkennilegt hljóð, sem ágerðist, þetta var eins og kurr í gömlum ískáp. Eftir um það bil klukkustund þá gáfumst við upp og hringdum í móttökuna og kvörtuðum því þetta var orðið frekar pirrandi. Þeir ætluðu að athuga málið, tíminn leið og hljóðið hélt áfram.... klukkan að ganga 3 um nótt.... pirringurinn að ná hámarki, hringdum aftur í móttökuna, þeir búnir að athuga málið og heyrðu ekkert í herbergjunum í kringum okkur. Þeir sendu upp öryggisvörð, ung kona kom og bankaði... heyrði hljóðið, fór að brosa og spurði "eruð þið með rafmagns tannbursta" Við alveg "ha.... nei" fórum að athuga málið betur. Hljóðið kom úr annarri ferðatöskunni. Oh my god... ekkert smá neyðarlegt... konan fór.
Við lærðum á þessu: "Takið batteríin úr hjálpartækjunum áður en að langt er að stað í ferðalag" :D
Erum komin til Rotterdam núna, verðum á hóteli næstu tvær nætur.
Sálin er létt og tilhlökkun til að takast á við þau verkefni sem fyrir okkur liggja.
Finna Vinnu
Finna Húsnæði.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
Hvað getur maður sagt ennað en en en en ......HAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHA
hæ knúsan mín !!! ég vissi ekki af brottförinni - missti af að bjalla í þig áður og knúsa þig símleiðis!
ég á vin í Rotterdam ef ykkur vantar hjálp bara láta mig vita og hann er ykkar maður - hann veit af vinkonum mínum þarna :) stráklingur en samt innfæddur :)
knús til Fergal
Guðrún og Gabríel :)
hæ elskan
fékk smssið frá þér er búin að pósta á forums til strákana :) vonandi heyri ég í þeim í dag / kvöld. Er þetta nýja símanúmerið þitt?
knús frá Íslandi
Guðrún K.
Skrifa ummæli