Vá hvað ég var hamingjusöm í morgun þegar ég mætti í vinnuna (og er enn).
Það beið mín Prins Póló á skrifborðinu mínu :D
Þvílík hamingja.... ég er búin að vera að narta í það núna í næstum 3 tíma.... Tími ekki að klára það... en ef ég þekki mig rétt þá verður það búið fyrir lok dags :D
Ég narta allan daginn í Prins Póló..... Mér er um og ÓÓÓÓÓÓÓÓÓÓ......
föstudagur, 30. maí 2008
fimmtudagur, 22. maí 2008
Það er stundum gott að vera íslendingur.
Ég er íslensk og ég meina það sem ég segi..... er setning sem ég óvart lét út úr mér um daginn eftir smá orðaskak við vinnufélaga. Vinnufélaga sem er ekkert voðalega vinsæll og á það til að segja aðeins meira en bara sannleikann og taka heiður fyrir það sem aðrir hafa gert.
Ég komst fljótt að því eftir að ég byrjaði hjá þessu fyrirtæki að það segir aldrei neinn neitt nema undir rós ef það er eitthvað sem kemur við kaunina á þeim eða jafnvel ef einhver treður á tánum á þeim. Þetta hefur farið hrikalega í taugarnar á mér og einn daginn þá voru það mínar tær sem var reynt að troða á og ég fékk nóg. Ég lét viðkomanda heyra það. Mörg orð voru sögð (vil ekki hafa þau eftir hérna, er ekkert voðalega stolt af orðavalinu, en meiningin komst til skila) en endaði ræðuna á því að segja "Þú ert tík og það sem meira er, ég er íslensk og ég meina það sem ég segi"
Ekki gerði ég mér grein fyrir því þegar þessi setning var sögð að þetta yrði til þess að núna vita allir að ég er sú íslenska og fæ klapp á bakið fyrir það.
Að allt öðru... veðrið er búið að vera alveg yndislegt síðustu vikur og ég alltaf að komast að því betur og betur hversu hæfileikarík ég er og er alltaf að bæta mig. Til dæmis þá get ég hjólað í þröngu pilsi :D án þess að sýna klofbótina. Það tók nokkra daga að venjast en eftir ómæld flaut, hlátrasköll og annað tilheyrandi þá tókst þetta á endanum. Hef ekki hingað til verið þekkt fyrir mikinn kvenleika en ættuð að sjá mig núna ;) því galdurinn við að hjóla í pilsi er að hjóla með hnéin saman. Ekkert kvennlegra en það.
Annars reiknaðist mér til að ég hjóla ca 100 km á viku til og frá vinnu sem gerir ca 400 km á mánuði. Fyrir þetta borgar fyrirtækið mér ca 7000 kr á mánuði. Ekki slæmt að fá borgað fyrir að hreyfa sig. Það koma nú stundum dagar sem ég hugsa mér að taka lestina en læt mig samt hafa það og þá er útkoman svona þegar maður mætir.

Já svona á meðan ég man. Ég er að leggja í smá ferðalag núna 6. júní fram til 20. júní. Við sjáumst vonandi því ég verð á Íslandi.

þriðjudagur, 13. maí 2008
Nýjar Myndir
Skellti inn nokkrum myndum svona til að bæta upp bloggleysið... er öll að koma til mun skella inn almennilegri færslu fljótlega....
laugardagur, 3. maí 2008
Ákall á hjálp.... björgum blogginu!!!!!!!!!!
Eins mikið og mig langar til að halda þessari síðu á lífi... þá ég virðist vera fallin inn í hversdagsleikann þótt hann sé að mörgu leiti frábrugðinn því sem ég hef átt að venjast..... veit samt ekki hverju ég ætti að segja ykkur frá????
Finnst að öllu leiti hallærislegt að þakka þessum og hinum fyrir góðan dag eða gott kvöld...... kannski sérstaklega þar sem að allir þeir sem ég hef samskipti við þessa dagana hafa ekki hugmynd um hvað hér stendur :) Gæti haldið Fjallkonuræðu hérna á hverjum degi en finnst þetta frekar tilgangslaust þ.e.a.s. þetta blogg... er haldin skriftarstíflu..
En eins og áður sagði þá langar mig til að halda þessu á lífi.
Fékk þess vegna þessa frábæru hugmynd! Hvernig væri að þið mynduð skjóta á mig kommentum í spurningarformi? Þ.e.a.s. er eitthvað sem ykkur langar að vita - heyra - eða jafnvel fá komment um???
Endilega látið í ykkur heyra!!
NEED INPUT!!!!

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)