mánudagur, 31. mars 2008
þriðjudagur, 25. mars 2008
Skammvinn gleði
Ég var yfir mig hamingjusöm í morgun þegar ég vaknaði og leit út um gluggann. Allt hvítt, nýfallinn snjór allstaðar og það snjóaði enn. Reyndar ekki mikill snjór en svona kannski ca 2 cm jafnfallinn :). Hoppandi kát stökk ég í sturtu og skellti mér í fötin og var um það að hendast út um dyrnar þegar þær opnast og inn kemur Fergal. Öllum lestarferðum var aflýst í morgun vegna snjósins @#$#$%&&#"#""@@@@!!!!!!!!. Get svo svarið fyrir það!!!!!!!! Ég skrönglaðist í vinnuna (þurfti reyndar að stóla á almenningssamgöngur þar sem að hjólið mitt varð eftir í vinnunni á fimmtudaginn) tók mig ekki nema 1 og 1/2 tíma því umferðin var hræðileg og bílar út um allt á hraða snigilsins!!!!
Get svo svarið fyrir það, væri ennþá hamingjusöm með snjóinn ef það væri ekki fyrir þá staðreynd að þetta land lokast ef það kemur smá snjóföl!!!!!!!

mánudagur, 24. mars 2008
Gleðilega nýliðna páska
Jæja síðasti dagur þessarar löngu helgar. Fengum reyndar bara 4ra daga þar sem að skírdagur er ekki frídagur hérna í Hollandi. En það kom ekki að sök þar sem af einhverjum undarlegum ástæðum þá líður frítíminn ekki eins hratt hérna og á Íslandinu góða. Kannski að ég sé bara orðin svona róleg og get notið þess að vera í fríi.... loksins.
Það er nú kannski ekki frásögu færandi en við skelltum okkur í betri skóna á laugardagskvöldið. Tilefnið var að einn vinnufélagi minn var með gesti frá USA hjá sér um páskana og ætluðum við að kíkja með þeim á tónleika. Vegna smá miskilnings í fólki þá vorum við of sein til að fá miða. Það var uppselt!!!! Vonsvikinn settumst við inn á barinn við hliðina á tónleikastaðnum og tróðum okkur 10 stykki í sæti og drekktum tárunum í bjór. Eitthvað fannst mér gaurarnir við hliðina á okkur búralegir og svei mér þá ef það var ekki gítarstrengjalykt af þeim. Ég segi í rælni við vinnufélaga minn "ég held að þetta sé hljómsveitin sem situr hérna við hliðina á okkur!!" hún snýr sér að þeim með það sama og segir þeim frá vonbrigðum okkar yfir að við skyldum ekki fá miða. Þessir gítarstrengjalyktandi góðu drengir í Alamo Race Track sögðu að það væri nú lítið mál að koma okkur inn, við myndum bara labba inn með þeim sem sérstakri gestir hljómsveitarinnar :D. Kvöldið varð hið besta, langt síðan við höfum skemmt okkur svona vel.

miðvikudagur, 5. mars 2008
Hélt ég yrði úti.....
Jamm..... þannig er nú það... get svo svarið fyrir það að þrjóskan á eftir að verða mín dánarorsök einhvern daginn.
Ég veit ekki hvort þið hafið tekið eftir því við mig en ef ég bít eitthvað í mig þá er lítið sem fær því haggað.
Eins og ég minntist á hérna um daginn þá hef ég sagt skilið við almenningssamgöngutæki hér í Rotterdam og hef í staðinn ákveðið að hjóla til og frá vinnu. Hjólreiðarnar hafa gengið vel og ég svona smátt og smátt verið að búa mig betur s.s. keypt buxnaklemmur, svo buxurnar festist ekki í keðjunni og svo regngalla. Ég sem sagt beit það í mig að ég ætlaði ekki að láta smá regn eða vind koma í veg fyrir þessar hjólreiðar mínar.
Í gærmorgun fékk regngallinn að sitja heima þar sem að hann komst ekki fyrir í töskunni (af því að ég var með svo mikið nesti með mér) og líka vegna þess að veðrið var með besta móti. Full orku lagði ég og stað og mætti í vinnuna fílelfd. Dagurinn leið áfallalaust og ekki mikið sem gerðist sem orðum er eyðandi á fyrr en 10 mínútum fyrir heimferð. Það kom þruma úr heiðskýru lofti í orðsins fyllstu og náttúrlega elding sem fylgdi í kjölfarið. Síðan þykknaði upp og byrjaði að rigna smá. Samstarfsfélagar mínir reyndu sitt besta til að fá mig ofan af því að hjóla heim en ég hélt nú ekki. Smá rigning hefur aldrei skaðað neinn sagði ég og lagði af stað.
Ég komst heim en það tók mig einn og hálfann tíma (vanalega tekur það 30 mínútur). Það var ekki þurr þráður á mér, gegnblaut og gegnköld. Barin í andlitinu eftir þvílíkann mótvind, hagl, slyddu og rigningu. Það voru fallnar trjágreinar út um allt, hvort það er vegna vindsins eða eldinga veit ég ekki en prísa mig heppna að vera ekki á staðnum þegar þær féllu.
Get svo svarið fyrir það, hélt á tímabili að ég myndi ekki komast heim. Það tók mig um 3 tíma að ná hita í kroppinn aftur. Niðurstaðan er samt ekki sú að ég hætti við að hjóla ef veður er slæmt, heldur fór ég og keypti mér nýja og stærri tösku svo regngallinn verður alltaf með í för ;)

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)