fimmtudagur, 26. júlí 2007

Í Rotterdam notar fólk regnhlífar... líka þegar það hjólar!?!

Síðustu dagar hafa verið tíðindalausir. Verð að viðurkenna að ég er orðin svoldið frústreruð varðandi íbúðamálin, virðist ekkert vera að gerast. En þá er bara að draga andann djúpt og trúa því að það leysist fljótt.
Ég vona að dagurinn á morgun hafi góðar fréttir í för með sér, ég er sem sagt að fara í atvinnuviðtalið kl. 10 í fyrramálið (8 á íslenskum tíma, þið hugsið til mín yfir morgunverðinum eða á leiðina í vinnuna).

Ég fann dönsku í bókabúðinni. Er búin að sitja yfir henni síðustu daga og hlusta á geisladiskana sem fylgdu með. Það er alveg ótrúlegt hvað þetta rifjast fljótt upp það litla sem maður kunni. Bý að því að hafa útskrifast sem stúdent af málabraut á sínum tíma, þannig að ég kann aðeins meira en bara grunnskóla dönskuna.

Á laugardaginn er sumarkarnival í Rotterdam, skilst á þeim sem ég hef talað við (sem eru alveg tveir, þrifakonan á hótelinu og strákurinn í móttökunni) að þetta sé þvílík skemmtun, mini útgáfa af suður amerískum kjötkveðjuhátíðum. Fjaðrir, dill og fjör. Við erum svo heppin að skrúðgangan og skemmtunin fer fram m.a. í götunni sem hótelið stendur við, þannig að það verður ekki langt að í stuðið.

Engin ummæli: