laugardagur, 13. október 2007

Slæmar hliðar

Varúð!!!!!

Áður en þið byrjið að lesa þá verð ég að taka það fram að ég er ekki alveg í besta skapinu í dag. Ef þið skynjið neikvæðann tón úr skrifum mínum, þá vinsamlegast lesið ekki of mikið úr því. Þið hugsið væntanlega “af hverju ertu þá að skrifa ef þú ert ekki í skapi til þess?” . Þá svara ég, “ævintýri hefur bæði góða hlið og slæma hlið og þetta blogg er tileinkað slæmu hliðinni”.

AAAAARRRRRRRGGGGGGGGG!!!!!!!!

Ég er að verða geðveik hérna!!!!!!!

Skítaholan sem ég bý í versnar dag frá degi. Standandi partý alla daga nema um helgar. HELVÍTIS SKÍTAPAKK, ekki hægt að klaga í drullusokkinn sem á húsið því að við erum leiðinlega fólkið sem ætlast til einhvers af honum.

Klósettið útmigið og skitið af einhverju andskotans pakki sem er þarna inn og út alla daga vegna þessa helvítis partýstands.

Erum búin að vera að skoða íbúðir, reyndar bara tvær. Þessi fyrsta var ekkert spes og hefði kostað okkur fúlgur í að hita upp því gluggarnir eru svo óþéttir. Skoðuðum íbúð 2 á fimmtudaginn sem er á góðum stað og á þokkalega góðu verði. Yndislega íbúð alveg, tilbúin til innflutnings með þvottavél og alles. (Verð að útskýra þetta með tilbúin til innflutnings því hérna í Hollandi eru flestar leiguíbúðir þannig að leigjendur ganga inn í íbúðirnar fokheldar. Þurfa að setja gólfefni og ljósafestingar, mála og þess háttar. Svo þegar þeir segja upp leigunni og flytja eitthvað annað þá taka þeir allt með sér. ALLT.)

Fór svo á leigumiðlunina í gær og við getum fengið íbúðina en nei, sumir vilja skoða fleiri íbúðir “af því að það gæti verið eitthvað betra einhvers staðar annars staðar”. Það eitt er að gera mig brjálaða í dag líka. Þessi andskotans hugsanaháttur að það gæti verið eitthvað betra hinum megin við hornið. Og vera svo upptekin af því að allt sé grænna hinum megin að sjá ekki tækifærin þegar þau gefast. ANDSKOTANS HELVÍTIS

Jæja, Takk fyrir mig búin að fá útrás, líður aðeins betur núna.

Annars gengur allt í ljómanum. Vinnan að gera sig, vinnufélagarnir yndislegir og veðrið er gott.
Nýjar myndir í albúminu


miðvikudagur, 3. október 2007

UPDATE

Það rignir og rignir í Rotterdam þessa dagana.
Fengum nóg á sunnudaginn síðasta og hoppuðum upp í lest og fórum til Antwerpen í Belgíu. Vá hvað það var gaman. Eins og koma í annan heim. 20 stiga hiti og sól og ekki nema í klukkustundar ferðalagi frá Rotterdam.
Antwerpen (það sem við sáum af henni) er mjög lifandi og skemmtileg borg. Og húsin.... Vááááááá gömul hús og skrautið og útflúrið og gullið!!!! er ekki mikið inn í arkítektúr til að geta sagt ykkur meira. Skoðuðum risa kirkju, Fergal hljóp út um allt leitandi að heilögu vatni til að geta signt sig (einhver kaþólskur siður). Tók nokkrar myndir, mun setja þær inn næst, ekki með þær á mér núna. En alla vegana við vorum í svo rosalegum fílíng þarna að við misstum af síðustu lestinni heim og þurftum að bóka okkur inn á hótel. En það var alveg þess virði, ljúft að sofa eina nótt ekki í skonsunni.
Talandi um skonsuna þá höfum við átt í smá erfiðleikum með leigugaurinn, svo miklum erfiðleikum reyndar að við sögðum upp leigunni fyrir um klukkustund. Er meira fegin heldur en hitt, þó svo að við verðum kannski á götunni eftir mánuð. Það gengur ekki alveg eins hratt fyrir sig að fá íbúð hérna og heima. En það skal takast. Erum aðeins meira inn í hlutunum núna heldur en þegar við komum í sumar þannig að núna er bara að krossleggja fingur og vona það besta.