sunnudagur, 23. september 2007

Nýjar Myndir

Nýjar myndir í myndaalbúminu frá Írlandi og Hollandi

Njótið vel

Sunnudagur til hvíldar

Yndislegur dagur í Rotterdam veðurlega séð. Þeir segja að sumarið hafi ekki komið til Hollands í ár. Kvarta um kulda og rigningar. Fyrir mig er þetta yndislegt, hef sem betur fer ekki aðlagast veðrinu ennþá þannig að ég get notið þess að hitinn er bara í 10 – 15 gráðum, Finnst þetta geggjað og fer út á stuttermabol. Ég er skrýtna konan í götunni :)

Það fer að verða aðkallandi að finna aðra íbúð. Sé fyrir mér að við parið verðum búin að drepa hvort annað áður en langt um líður. Erum samt bæði meðvituð um að þetta er bara tímabundið og við vitum að við komust í gegnum þetta. En vá þvílík áreynsla á samband karls og konu að flytja til annars lands. Hvorugt okkar hefur stað til að flýja til ef hlutirnir verða óbæranlegir (ekki einu sinni klósettið þar sem að við deilum því með öðrum).

Get alveg sagt að það er ekki auðvelt þegar pirringurinn lætur á sér bera að búa í lítilli skonsu/stúdíóíbúð. Þú snýrð þér til hægri og sérð hinn aðilann, snýrð þér til vinstri og hvað sérðu? Hinn aðilann! Þú snýrð þér við og hvað sérðu? Hinn aðilann. Úffff og þá lokarðu augunum, en ert tilneyddur til að opna þau aftur og hvað sérðu? Hinn aðilann!

Þessa dagana þá elskum við mánudaga, þriðjudaga, miðvikudaga, fimmtudaga og föstudaga því þá förum við í vinnuna Jippííííííííííí 10 klst í að sjá eitthvað annað en hinn aðilann. Það er gaman að fara í vinnuna.

Enn og aftur takk fyrir öll commentin. Er búin að stilla það þannig að ég fæ þau send í email um leið og þau berast. Þannig að ég þarf ekki að bíða í viku til að sjá þau. Get aftur á móti ekki svarað þannig að ekki halda að ég lesi þau ekki þó ég svari ekki.

sunnudagur, 16. september 2007

Nágrannar

Húsið sem við búum í er á 3 hæðum, eiginlega 4 en þar sem ekkert er á jarðhæðinni nema inngangurinn þá eru þetta ekki nema 3 hæðir í Hollandi. Á hverri hæð eru 2 skonsur og 1. baðherbergi (s.s. 2 skonsur með eitt klósett). En þar sem að skonsurnar eru svo litlar þá er hámark 2 persónur í hverri skonsu.

Landlordinn er “gufuhaus” hef ekki mikið meira um hann að segja og við sjáum hann mjög sjaldan, sérstaklega ef við þurfum á honum að halda, en hann er fyrstur á svæðið ef leigan er ekki komin inn á réttum tíma, s.s. fyrir kl. 12 á hádegi fyrsta hvers mánaðar :)

Aðra sögu er að segja um nágrannana og eru þeir allir efni í heila bók.

Í íbúð 1. býr kona sem ég veit ekki hvaðan er. Heimildarmaður minn segir að hún sé “NutCase” sem að ég held að sé alveg rétt. Hún er búin að búa í húsinu lengst allra sem eru þar núna. Það er ósjaldan að maður heyrir hana öskra ef hurð skellist eða einhver hljóð heyrast úr öðrum íbúðum. Ég hef ekki lent í henni en Fergal hefur fengið að finna fyrir henni. Skildist á Fergal að hann hefði bara sagt henni að steinhalda kjafti og vera ekki að skipta sér af því sem henni kæmi ekki við. Eitt skiptið bankaði hún upp á hjá okkur til að spyrja okkur ef við hefðum heyrt einhver hljóð af efstu hæðinni. Kommon kona.... Lifðu og leyfðu öðrum að lifa í frið! Við höfðum reyndar heyrt hljóð en sögðum henni það ekki, parið á efstu hæðinni var að rífast, en hvað kemur okkur það við eða henni ef þau rífast eða ekki (kem að því seinna).

Í íbúð 2. býr maður sem ég hugsa að sé komin vel á fimmtugsaldur. Það er ósjaldan sem maður kemur upp stigann að hann stendur í dyragættinni í boxer-nærbuxunum sínum og hvítum ermalausum bol með úfið hárið. Svoldið fríkí fyrst en komst síðar að því að þetta væri meinlausasti maður í öllu Hollandi. Hann kemur frá litlu þorpi utan af landi en flutti til Rotterdam fyrir 11. mánuðum. Hann fer helst ekki út, þekkir fáa og er og hefur alltaf verið einfari. Mér skilst að hann sé alkahólisti en það eina sem maður sér af honum er þegar hann stendur í dyragættinni. Heimildarmaður minn segir að íbúðin hans sé “spotless” hvergi rykkorn að finna og virkilega smekkleg.

Í íbúð 4. (núna erum við sem sagt á okkar hæð og við erum íbúar í íbúð 3) býr heimildarmaður minn, hollensk kona sem er búin að reynast okkur mjög vel. Hún er komin vel á miðjan aldur, svoldið lifuð og eftir því sem mér skilst þá hefur hún ekki átt mjög auðvelt líf fram til þessa. Var gift og á einn son. Hún gekk út úr hjónabandinu eftir að hafa verið barin sundur og saman í 13 ár. Veit ekki alveg hvernig sagan er og langar ekki að vita mikið meira. Núna á hún írskann kærasta sem vinnur á olíuborpalli. Hann vinnur í 3 vikur og er svo heima í 2 vikur. Hann er fyndinn, hræðilega ofvirkur en besta skinn. Þau ferðast mjög mikið því þegar hann kemur heim þá bíður hann henni með sér til sólarlanda viku í senn. Þess vegna hefur hún verið í 3. vinnum síðan við fluttum inn því hún er alltaf að taka sér frí til að fara til útlanda og er búin að missa vinnuna þegar hún kemur heim. Henni finnst það allt í lagi, hún er hamingjusöm og það er fyrir öllu. Í morgun fóru þau til Grikklands.

Í íbúð 5. er að ég held asísk stúlka. Veit ekkert um hana. Hef séð hana 2x. Held að hún sé í skóla hérna.

Í íbúð 6. er parið. Þau eru ensk. Hún vinnur á bar neðar í götunni og hann, já hann, hann hefur ekkert unnið síðan við fluttum inn. Búin að vera inn og út af spítala vegna slagsmála og drykkju. Fyrst var hann handleggsbrotinn og svo er búið að sauma hann sundur og saman í andlitinu síðan. Þau eru ekki mikið meira en 20 – 22ja ára. Þið þekkið týpuna, alltaf fullur og alltaf að slást. Okkur finnst ekki mikið til hans koma og reynum að leiða hann hjá okkur eftir fremsta megni. Tekst ágætlega. Nema þegar við komumst ekki hjá því að heyra hann rífast og dangla í kærustuna sína. Hún er ósjaldan með glóðurauga og sprungna vör. Sorglegt.

Heimildarmaður minn minntist eitthvað á að þau væru að missa íbúðina þannig að fljótlega fáum við kannski nýja nágranna. Verður spennandi að vita hvernig þeir verða.

föstudagur, 14. september 2007

Heimilisfang

Finnst alltaf gaman að fá kort eða bréf.

Heimilisfang:

Nieuwe Binnenweg 245b
3021 GD Rotterdam
Netherland

Ef þið skiljið eftir heimilisfang í Comments þá er aldrei að vita nema að þið fáið PÓSTKORT :)

Vá hvað það er langt síðan ég bloggaði!!!!

Það er stundum erfitt að vera orðin “almennur” starfsmaður eftir að hafa unnið í tölvudeildinni í mörg ár.

Ég fékk loksins tölvuna (eins og ég minntist á um daginn). Fékk þessa fínu tölvu og flatann skjá J eina manneskjan sem er með flatann skjá!!!! Og allir eru grænir af öfund. Myndi finnast mikið til þess koma ef skjárinn væri stærri en 15” hehehehehehe. Hef haft það allt of gott hjá UTS síðastliðin ár.

Mér finnst ég alltaf vera að uppgvötva nýja hluti þessa dagana. Gæti sagt að ég sé að læra alveg heilmikið um sjálfa mig og/eða fólk almennt. Mín helsta skemmtun þessa dagana er að fara á útimarkaði, ekki til að versla heldur til að fylgjast með fólkinu, berast með straumnum, brosandi mínu sólheimabrosi og dillandi mér í takt við tónlistina sem er spiluð í sumum básunum. (Tek Fergal ekki með mér í þessa leiðangra mína, hann er alltaf að flýta sér eitthvað.)

Í gær rann upp fyrir mér að á þessum stutta tíma síðan við fluttum inn í skonsuna þá hef ég takmarkað hversdaginn við eina götu. Götuna sem við búum við. Hef alltaf farið sömu leiðina niður í bæ, í vinnuna, í búðina. Mér var farið að líða aðþrengdir án þess að gera mér grein fyrir því. Þangað til í gær, þá þurfti ég að fara á pósthúsið. Í þveröfuga átt við það sem ég hef alltaf farið.

Mér leið eins og mér hefði verið hleypt út úr búri. Við gönguna á pósthúsið þá víkkaði sjóndeildarhringurinn heilmikið í 10 mínútna göngufjarlægð frá skonsunni fann ég til dæmis, elsta part Rotterdam, Delfshaven, eina hverfi Rotterdam sem ekki var jafnað við jörðu í seinni heimstyrjöldinni. Ég þurfti að bíða eftir því að prammi færi hjá til að ég kæmist yfir vindubrúnna. Ég sá í fyrsta skipti í Hollandi, vindmyllu. Ég fann “ChinaTown” (er reyndar bara ein gata), ég fann einnig hóruhús (fór samt ekki inn). Ímyndið ykkur. Allt þetta í nágrenninu og ég fyrst að finna það út núna. :)

Vissuð þið að í Hollandi er að finna búðir sem selja próteindrykki og svona heilsuræktarpillur og duftmat eins og t.d. Hreysti gerir á Íslandi ? Auðvitað vissuð þið það.... En þið vissuð ekki að í öllum þessum heilsubúðum geturðu farið inn og keypt þér fitubrennslutöflunar þínar og OFSKYNJUNARSVEPPI og fleiri vímuefni.... hélt að ég yrði ekki eldri. En svo náttúrulega eftir smá hugsun þá ákvað ég að verða eldri, “softdrugs” eru lögleg í Hollandi. Þetta er samt eitthvað sem á eftir að taka mig tíma til að venjast.

Írland var BLISS... það var svo gott að koma þangað, eins og að koma heim. Þessir 2 dagar voru notaðir til hins ýtrasta. Lítið sofið. Hittum alla og fleiri sem ég hef ekki hitt áður. Mikið hlegið, talað og grátið. HEHEHEHE já grátið, Happy Tears samt.








Sakna ykkar allra.

Kossar og knús á línuna.