þriðjudagur, 12. febrúar 2008

Fuglasöngur og blóm

Unga stúlkan (konan) sem situr hér og ritar þessi orð er gjörsamlega uppgefin andlega og líkamlega en ennfremur er hún með eindæmum ánægð með sjálfa sig.
Nýja vinnan gengur vel en tekur á, margt nýtt sem þarf að muna og annað sem þarf að læra alveg frá byrjun. Óþolinmæðin tekur líka orku þar sem stúlkunni finnst hún ekki getað munað og lært allt eins hratt og hún vill.
Unga stúlkan fór einnig sína fyrstu ferð á hjólinu alla leiðina í vinnuna í dag :) yndislegt alveg hreint.
Það er orðið bjart núna fyrir kl 8 á morgnana sem gerir það auðveldara að rata ;) og ekki skemmir fyrir góða veðrið sem búið er að vera hérna undanfarna daga. Reyndar kalt á morgnana þannig að gras og annar gróður er skreyttur frostrósum en allt bráðnar þetta fljótt í sólinni sem hefur glennt sig hérna á hverjum degi síðan á föstudag, samkvæmt spánni þá á þetta að haldast út vikuna.

Það er virkilega gaman að vera til í dag. Ekki oft sem stúlkan hefur upplifað að sjá náttúruna lifna við í febrúar. Fuglasöngur og blóm sem fá litla íslenska hjartað til að slá hraðar af gleði.