fimmtudagur, 24. maí 2007

Hátíðisdagur



















Hin yndislega stórfrænka mín á afmæli í dag
Til hamingju með daginn frænka

Kv
Ragnh.

miðvikudagur, 23. maí 2007

Undin tuska

Vááááááááááááááá
er eins og undin tuska í dag
laugin er málið
ætla sko aftur í næstu viku
finn ekki til í hnjánum í dag

þriðjudagur, 22. maí 2007

Höfuðbein og spjaldhryggur

Minn maður er búinn að vera í meðferð í lítilli sundlaug, hjá höfuðbeina og spjaldhryggs snillingum, undanfarnar vikur. Hann er orðinn allt annar maður.
Í kvöld fer ég í hans stað og get ekki beðið. Þetta er alveg ótrúlega spennandi, ég fékk smá prufutíma um daginn og vá get ekki lýst því með orðum.
Þannig að í kvöld verð ég í ólýsanlegum aðstæðum.

Fallegir dagar

Þrátt fyrir snjókomu og smá vesen í lífinu undanfarna daga þá get ég ekki annað sagt en að lífið sé fallegt. Mér finnst þetta skemmtilegasti tími ársins og gaman að sjá bæði fólk og umhverfi lifna við eftir veturinn.
Í dag er ekki nema mánuður í síðasta vinnudag, CV"ið" er svo til tilbúið og verður sent út eftir nokkra daga, pappakassarnir eru komnir í hús og núna verður tekið á því (um leið og ég læt verða af því að ná mér í límband ;) )


Ég er alveg hryllilega spennt yfir þessu öllu saman. Mér finnst ég standa nakin á klettasyllu með bundið fyrir augun og aðeins eitt skref.... og ég mun falla eins og steinn niður í óvissuna.

Vííííííííííííííííííííííííííííííííííííííííííííííííííííííííííííííííííííííííííííííííííííííííííííííííí get ekki beðið, því það er aldrei að vita hvað ég mun finna og hvað ég mun gera.

mánudagur, 7. maí 2007

Akureyri, Húsavík, Mývatn Akureyri

Gistiheimilið = snilld
Hvalaskoðun = snilld
Jarðböðin = snilld
Ball með Bjögga og Brimkló = algjör snilld

Helgin = Snilld

föstudagur, 4. maí 2007

I Feel Like "Ragga" Tonight!

Eftir vinnu í dag á að brydda aðeins upp á hversdagsleikann með helgarferð til Akureyrar.
Það verður stuð.
Farið verður á nýja bílaleigubílnum sem ég fékk í skiptum fyrir rauða bílaleigubílinn (af því að hann var á nagladekkjunum).
Ég sem sagt hringdi í bílaleiguna út af nagladekkjunum og þeir segja "já koddu bara, við skiptum um þetta bara meðan þú bíður" og vitið þið bara hvað, þegar ég mæti þá fæ ég bara annan bíl á sumardekkjum í staðinn.
Það væri ekki slæm veröld ef maður gæti leyft sér það í lífinu að eiga einn vetrarbíl og annan sumarbíl. Ekkert vesen með dekkjaskipti eða umfelganir, uuuuuuummmmm góð tilhugsun.

Að allt öðru, hafið þið skoðað "The Advertising Slogan Generator"? Þetta er algjör snilld, ef þetta lyftir ekki á manni munnvikjunum þá veit ég ekki hvað gerir það.
Til að ná munnvikjunum eyrnanna á milli prufið þá endilega líka "The Movie Quote Generator" bara snilld.

miðvikudagur, 2. maí 2007

It´s that Ragga feeling!!!!

Svona líður mér í dag.
Tíminn silast áfram.