föstudagur, 20. júlí 2007

God dag, snakker du dansk.

Þetta eru búnir að vera skrýtnir dagar fram að þessu, hef aldrei eytt eins miklum tíma á hótelherbergjum eins og þessa síðustu daga. Við höfum ekki einu sinni farið á barinn hvað þá meira, en málin standa þannig núna að við erum í ferlinu að sækja um íbúð hjá borginni, allar aðrar íbúðaleigur og leigumiðlanir vilja fá 3ja mánaða fyrirframgreiðslur + mánaðarleigu + prósentur sem er yfirleitt 19% af mánaðarleigunni þar sem að við erum nýkomin til landsins. En hjá borginni borgum við 1500 evrur fyrirfram og mánaðarleigan 400 - 500 evrur eftir það. Það besta sem við höfum séð hingað til.
Fergal byrjar að vinna á mánudaginn og ég er að fara í atvinnuviðtal hjá Rockwell Automation á föstudaginn í næstu viku. Er með svoldið í maganum yfir því þar sem að þeir eru að leita að dönskumælandi einstaklingi og auminginn ég setti í ferilskránna að ég væri mellufær í dönsku ;) (orðaði það samt betur). En alla vegana þá var búið að skipuleggja símafund á dönsku, þriðjudaginn í næstu viku, ég ætlaði heldur betur að æfa mig, fara í bókabúðina og reyna að finna bækur á dönsku og svo liggja á internetinu, dönsku síðunum. Hvað haldið þið, þeir misskildu eitthvað og hringdu í morgun..... úfffffff kvíðahnúturinn..... enginn undirbúningur og algjörlega óviðbúin..... vona að ég hafi ekki klúðrað þessu en á ennþá að mæta í viðtalið á föstudaginn.... þið krossleggið fingur fyrir mig.
Núna ætla ég að borða rod grod med flode í allar máltíðir fram á föstudag
Bestu kveðjur til Íslandsins góða

PS. er komin með hollenskt númer +31 638112891 þannig að ef þið viljið láta heyra í ykkur þá mun ég svara ;)

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

vertu bara lige glad :O) og þá bjargast þetta allt saman :O)