föstudagur, 28. desember 2007

Action Woman




Jæja lét loksins verða af því að fá mér hjól. Fann notað hjól fyrir slikk, fínasti fákur hvítur og blár. Ekki var ég nú búin að eiga hjólið lengi þegar mér tókst að detta. Jamm, missti stjórn og framhjólið festist í sporvagnarás með þeim afleiðingum að ég flaug á hausinn. Ég er nú samt óbrotin ;) en smá skrámuð. Þurfti svo að leiða hjólið heim þar sem að í hamagangnum þá tókst mér að beygla keðjuhlífina og pedalarnir fastir.
Ætla að senda Fergal út í birtingu til að flikka upp á fákinn.
Get nú ekki annað en hlegið að þessu núna með smá roða í kinnum þar sem að ég sé mig ennþá í huganum standa upp úr götunni leiða hjólið upp á gangstétt til að hlamma mér á rassgatið aftur svona vegna þess að lappirnar létu ekki af stjórn. Innilegir vegfarendur allt í kringum mig að vorkenna mér og reyna að fá mig til að standa upp, það var tosað ýtt á risann frá Íslandi sem náði loks að gera sig skiljanlegann að allt í lagi væri með mig en ég þyrfti bara aðeins að fá að sitja lengur.
Annars voru jólin yndisleg, yndislegur tími sem eytt var í að borða, lesa, borða, horfa á TV, borða og sofa (kalkúnninn er ennþá í borðun).
Við hættum við þýskalandsför þar sem að vinur okkar óskaði eftir því að koma hingað til Rotterdam og eyða með okkur áramótunum hér. Það er fínt þó svo að gaman hefði verið að komast í smá ferðalag.

mánudagur, 24. desember 2007

Jólakveðja

Ég eiginlega trúi því ekki að það séu komin jól, kannski vegna þess að enginn er hamborgarhryggurinn í ískápnum eða ilmur af sjóðandi hangikjöti í loftinu. Engin skötulykt til að fussa yfir og engir pakkar eða kort sem á eftir að keyra út þann 24. desember. Allt eru þetta fyrir mig merki þess að jólin eru gengin í garð.

Þó svo að fattarinn er ekki að skynja jólin þá svona vegna þess að dagatalið segir mér að það séu að koma jól, þá er ég nú samt búin að þrífa allt og ganga úr skugga um að jólakötturinn nái ekki að festa klónum í okkur með því að kaupa jólafötin. Við erum búin að fara á markaðinn til að versla í jólamatinn (enginn Bónusferð þetta árið heldur). Á markaðnum festum við kaup á 3,5 kílóa kalkún og öllu því meðlæti sem tilheyrir. Við verðum 2 í mat þannig að við endum árið og byrjum það næsta á því að borða kalkúnasamlokur í öll mál (las einhvers staðar að 3-4 kílóa kalkúnn væri mátulegur fyrir 6-8 manns (þetta var sá minnsti sem við fundum)). Deginum á morgun verður svo eytt í dúll og afslöppun því jólin verða haldin að írskum sið þann 25. desember.

Þið sem eigið svo gott að geta drukkið malt og appelsín um jólin megið alveg drekka eitt glas fyrir mig ;)

Ég sendi ykkur öllum mínar bestu jólakveðjur og vona að þið hafið það gott.

Prettige Kerstdagen en Gelukkig Nieuwjaar

laugardagur, 22. desember 2007

þriðjudagur, 18. desember 2007

Ökumenn í Rotterdam þurftu að skafa í morgun.

Það er kalt í Rotterdam þessa dagana. Sem betur fer er ekki mikið um úrkomu og vindurinn heldur sér í skefjum. Það er allt annar kuldi hérna heldur en heim á gamla góða Íslandi. Hérna er rakinn mikið meiri og kuldinn nístir inn að beini. Minnir mig á veturinn í USA á sínum tíma þar sem horið fraus í nefinu um leið og þú sagðir orðið ”út”. Einnig finnur maður meira fyrir kuldanum hérna þar sem að manni er kalt bæði inni og úti. Húsin hérna er ekkert einstaklega vel einangruð og þar af leiðandi erfitt að hita almennilega upp, og svo náttúrulega fyrir utan það að maður þarf að vera milljónamæringur ef maður ætlaði sér að hita upp eins og íslendingur. Eitthvað sem maður hefur ekki þurft að hugsa mikið um fyrr en núna. En sem betur fer eru vatn, hiti og rafmagn innifalið í leigunni þannig að við höfum getað hitað þokkalega upp.

Jólapartýið í vinnunni var brilliant frá A-Ö þvílík hamlaus gleði frá upphafi til enda. Góður matur, nóg að drekka og dansað, dansað, dansað við dúndrandi tónlist DJ Buddha.
Ykkar yndislegust mætti náttúrulega í nýju háhæluðuskónum sem hún hafði aldrei farið í áður og ÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁi verkirnir. Skapplappaðist í leigubíl heim rétt eftir kl 01:00. Hélt að ég myndi ekki meika það upp stigann.

Við verðum bæði í fríi í 2 vikur og erum búin að byrgja okkur af lesefni frá bókasafninu þessa daga sem við verðum heima. Við stefnum á að fara til Þýskalands í nokkra daga til að hitta góðann vin og eyða áramótunum með honum. Ég var reyndar búin að plana að koma til Íslands í janúar en það verður ekkert af því núna vegna breytinganna í vinnunni. Ég verð í stífri þjálfun út janúar ásamt því að sinna því sem ég er með núna og síðan tekur alvaran við í febrúar. Ég ákvað því að nota þessa frídaga sem ég á inni núna um jólin til að ég sæti ekki uppi með þá þegar ég fengi ráðningarsamninginn við Rockwell (get ekki flutt þá með mér) og þurfa svo að borga 40% skatt þegar ég fengi þá borgaða út frá Undutchables.

fimmtudagur, 13. desember 2007

Það sem af er desember.

Ég fékk bréf og súkkulaði frá Sinterklaas x2 :) Verð að deila með ykkur öðru bréfinu.

Every year on the 5th of December
there is an ancient guy with a long white beard we remember

He gives presents to people if they have been sweet.
Otherwise you will be taken back with him to Spain indeed!

Since you have been nice,
Sinterklaas decided to also give you a surprise!

So enclosed is something sweet to eat,
It is a delicious SinterKlaas treat!

We hope you enjoy this chocolate letter
On the 5th of December nothing tastes better!

Enjoy and best regards,
Sinterklaas & Zwarte Piet

Hefði ég vitað að ég fengi spánarferð fyrir að vera óþæg þá hefði ég ekki hugsað mig tvisvar um!!
Með bréfinu fylgdi súkkulaðistafur, fékk s.s. risa súkkulaði R.

Svo í gær þá fengum við tölvupóst frá starfsmannadeildinni um að við gætum komið milli klukkan 10 og 11 til að ná í jólagjöfina. Langt síðan ég hef fengið fyrirtækisjólagjöf (þar sem að það tíðkaðist ekki á síðasta vinnustað) þá spenntist ég öll upp og var fyrst á staðinn. Váááááá segi ég nú bara, aldrei fengið eins veglega jólagjöf. Fullt af einhverjum ítölskum mat, salatskál, pizzadiskur og eldfast lasagnamót. Salatáhöld, hvítvín, happdrættismiði og fleira og fleira. Þetta var allt saman í stórum pakkakassa (svona "hringja dyrabjöllunni með olnbogunum kassi) og níðþungur í þokkabót. Ég þakkaði henni "lukku" minni að ég fékk far heim því nóg var nú vesenið að koma þessu upp stigann :) hefði ekki boðið í strætó-, neðanjarðarlestar- og svo sporvagnaferð með þetta í örmunum.


Á morgun er svo jólapartýið fáum mat og drykk frá kl. 18 til 00:30. Getið nú rétt ímyndað ykkur hvar ég verð þegar frítt er annars vegar :)
Annars hlakkar mig mikið til og búin að liggja í brúnkukreminu alveg út í eitt (síðan í gær, þegar ég uppgvötvaði að litarhaftið passaði ekki alveg við gull litaða bolinn sem keyptur var á slikk fyrir partíið) plokkaði á mér augabrýrnar (já, þið sem þekkið mig, þá plokkaði ég á mér augabrýrnar alveg sjálf og það tókst alveg þónokkuð vel ef ég segi sjálf frá, og ekki nærri því eins vont núna og það hefur alltaf verið. Held það sé aðallega vegna þess að ég er ekki alveg viss um hvert ég ætti að fara til að láta vaxa þær, þannig að ég varð að duga eða blindast af augnabrúnum!!!)

Síðast en ekki síst er það rúsínan í pylsuendanum :)
Það er búið að bjóða mér fast starf hjá fyrirtækinu þannig að ég þarf ekki að hafa áhyggjur af því að verða atvinnulaus í febrúar. Ég náttúrulega tók því fegins hendi, ég mun flytjast til innan deildarinnar og sinna öðru starfi en ég er að sinna núna og byrja í þjálfun núna í janúar. Ég mun ekki þurfa að tala dönsku nema 2 daga í viku. En aðal málið er samt að fá að takast á við eitthvað nýtt.

Vona að þið hafið haft það sem best það sem af er aðventunnar og eigið góða komandi daga.
Kiss kiss og knús ;)



laugardagur, 1. desember 2007

Laugardagur til lukku (vona ég fyrir hönd okkar allra)

Síðustu dagar eða öllu heldur vikur hafa verið mjög tíðindalitlir hérna hjá okkur í Hollandi að því undanskildu að við erum kominn með heimasíma og internettengingu, það hefur heldur betur lyft lundinni til hæðstu hæða. Yndislegt alveg hreint. Held samt að ég fái sjokk þegar ég fæ fyrsta símareikinginn ;) en það verður vel þess virði.

Sit hérna ennþá í náttfötunum, ein heima með kveikt á kertum um miðjann dag. Sólin skín úti og þvottavélin að þeytivinda (gólfið titrar) og Albert King í útvarpinu að spila "I´ll play the Blues for you"og ég bara get ekki slitið mig frá tölvunni :) er að vinna upp margra mánaða vafr og spjall við vini og ættingja. Lífið gæti ekki verið betra.

Fyrsti sunnudagur í aðventu á morgun, hef verið að leita eftir jólakortum hérna undanfarna daga (veit reyndar hvar ég get fengið þau en þau eru bara svo asskoti langt í burtu í augnablikinu) en þessi sem ég hef fundið hérna nálægt mér eru mjög fyndin. Hef verið að hugsa með mér að svona upp á grínið að kaupa nokkur og senda heim. En þau eru "Made in China" með frekar tvíræðum jólamyndum með enskum og oft misheppnuðum texta t.d. "Me whis you a Merries Christ Mas" :)

Hollenski "SinterKlaas" er á leiðinni frá Spáni í gufuskipi og verður hérna á Sint Nikolaas kvöld 5. desember. Í för með honum er Svarti Pétur (Zwarte Piet) sem er hjálparsveinninn hans. Mér skilst að Svarti Pétur sé einhver óknyttastrákur sem er alltaf svartur í framan eftir að hafa skriðið niður og upp skorsteinana. Það verður spennandi að vita hvað gerist 5. des.

Tók nokkrar myndir af "Höllinni" og setti inn á myndasíðuna. Frekar tómlegt hjá okkur ennþá en allt sem við þurfum :)