Það er búið að vera kalt hérna í Rotterdam síðustu viku(r). Svona nístíngskuldi sem borara sér allsstaðar þangað til hann hefur fundið sér stað í mergnum. Nógu kalt fyrir Hollendinga í fyrsta skipti í yfir 10 ár til að skauta á sýkjum og vötnum. Fór í smá göngu áðan í nágrenninu og sá þetta með eigin augum. Mjög fallegur dagur í dag.