föstudagur, 27. apríl 2007

Dánarfregnir og jarðarfarir

Jæja þá er skjaldbaka búin að fara sína hinnstu ferð og verður væntalega jörðuð í kyrrþey í kvöld eða fyrramálið.... mikill söknuður í gangi en á hinn bóginn þá er ég glöð að hún sé búin að fá hvíldina. Búið að vera mikið stríð núna síðustu mánuði...
Þannig að núna er ég formlega "ekki" skráður bíleigandi.
Hvíl í friði

Í fréttum er þetta helst....

Manninn minn er kominn aftur til landsins, ákvað að slaufa þessu bara fram í júlí, þannig að við förum saman þá... :) mikið skemmtilegra líka

Pabbi minn er kominn á þetta líka flotta hjúkrunarheimili, mikill léttir fyrir alla aðila að hann sé laus af biðdeildinni. Aðstaðan er öll til fyrirmyndar og honum lyndir mjög vel, meira að segja talar um að maturinn sé góður :)

Bíllinn minn er kaput og fer á haugana í dag :( helv.... greyið gat ekki hangið í 2 mánuði í viðbót... en verðum að taka því með jafnaðargeði ekkert við því að gera (fæ alla vegana 15þús fyrir hann á haugunum)

þriðjudagur, 17. apríl 2007

Í dag er ég glöð

Það er margt sem gleður hjartað í dag. Í fyrsta lagi, þá var ég búin að gleyma að það er frí á fimmtudaginn... en núna man ég það og þess vegna er ég glöð.
Í öðru lagi þá er pabbi minn loksins búinn að fá plássið eftir árs bið og verður fluttur á mánudaginn næsta...
Margt smálegt hefur svo gerst í dag sem gerir mig glaðari og glaðari og á endanum þá mun Eggert hittast í kvöld og þá verður líka mikil gleði.
Vona að þið öll séuð eins glöð og ég.

mánudagur, 16. apríl 2007

Áttundi dagur

Helgin leið hratt, en var góð frá upphafi til enda. Sé það að ég verð að fara að skipuleggja mig betur ef ég ætla að komast yfir það sem ég ætla að gera áður en lagt verður í hann, því tíminn flýgur.
To do listinn lítur svona út í augnablikinu:

1. Vá hvar á ég að byrja!!!!
2. ?????
?.

Já verð að koma mér í gírinn, vil helst vera búin að öllu fyrir 24. júní.
Allar skipulagsráðleggingar vel þegnar

miðvikudagur, 11. apríl 2007

Niðurtalningin er hafin

3 dagar liðnir og 82 dagar to go.
Finnst þetta allt of langt í dag en sem betur fer er margt sem þarf að gera og áður en maður veit af þá verða 82 dagar liðnir og 3 to go.