laugardagur, 21. júlí 2007

Stuttbuxum og ermalausum bol......



Fórum í smá ferðalag í dag. Fórum til Den Haag til að komast á Scheveningen ströndina. Risa strönd í klukkutíma fjarlægð með lest + sporvagni frá Rotterdam. Lágum nú lítið í sólbaði þar sem að það vindaði mikið frá Norðursjónum og sólin faldi sig reglulega á bak við skýin. Samt nógu mikil sól fyrir mig til að verða rauð á öxlunum og verða bitin á alla vegana 3 stöðum af moskító eða einhverju álíka.



Margt sem ég gerði í fyrsta skipti á ævinni í dag.
1. ferðaðist í 2ja hæða lest (Double decker train)
2. ferðaðist með sporvagni
3. framdi fyrsta lögbrotið í Hollandi x2
4. tók vitlausa lest og endaði í einhverju smáþorpi sem heitir Gouda (eins og osturinn)

Ekki samt missa ykkur yfir lögbrotunum, komst ekki upp um mig, en fór í sporvagninn án þess að borga, héldum að það væri miðasalakall um borð, en enginn kom og við út á áfangastað. Það sama gerðist á leiðinni til Rotterdam frá Gouda, búið að loka miðasölunni á lestarstöðinni og enginn rukkaði okkur. Var samt með lífið í lúkunum því miðakallinn í vitlausulestinni hélt yfir okkur þvílíka ræðu, skildum ekki orð, sögðum bara, "já, já".
Morgundeginum ætlum við að eyða í að kynna okkur metro/strætó kerfið í Rotterdam. Það er víst ekki nóg að þekkja bara eina götu og eina lestarstöð.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hahahaha ég er enn að hlæja yfir "rafmagnstannburstanum". Knús til ykkar beggja og ég krossa með ykkur putta að þið fáið íbúð sem fyrst... Gaman að fá að fylgjast með ykkur :)

kv,Birgitta

Raggan sagði...

Takk fyrir Birgitta mín :) já mikið búin að roðna, fá kjánahroll og hláturskast út af þessum kringlótta "rafmagnstannbursta".

Nafnlaus sagði...

ehehehehe svona humm*hóst*humm... rafmagnsdæmi kemur náttlega ekki fyrir hvern sem er :) það eru allavegana ekki margir sem að kunna að segja svona skemmtilega frá því eins og þú Ragga mín :)

gaman að geta fylgst með ferðasögunni, en ég er 99% viss um að hún mun verða skondin á köflum:)(byrjaði allavegana þannig) :)

farðu vel með þig stelpa

knús af klakanum

Elfa