Húsið sem við búum í er á 3 hæðum, eiginlega 4 en þar sem ekkert er á jarðhæðinni nema inngangurinn þá eru þetta ekki nema 3 hæðir í Hollandi. Á hverri hæð eru 2 skonsur og 1. baðherbergi (s.s. 2 skonsur með eitt klósett). En þar sem að skonsurnar eru svo litlar þá er hámark 2 persónur í hverri skonsu.
Landlordinn er “gufuhaus” hef ekki mikið meira um hann að segja og við sjáum hann mjög sjaldan, sérstaklega ef við þurfum á honum að halda, en hann er fyrstur á svæðið ef leigan er ekki komin inn á réttum tíma, s.s. fyrir kl. 12 á hádegi fyrsta hvers mánaðar :)
Í íbúð 1. býr kona sem ég veit ekki hvaðan er. Heimildarmaður minn segir að hún sé “NutCase” sem að ég held að sé alveg rétt. Hún er búin að búa í húsinu lengst allra sem eru þar núna. Það er ósjaldan að maður heyrir hana öskra ef hurð skellist eða einhver hljóð heyrast úr öðrum íbúðum. Ég hef ekki lent í henni en Fergal hefur fengið að finna fyrir henni. Skildist á Fergal að hann hefði bara sagt henni að steinhalda kjafti og vera ekki að skipta sér af því sem henni kæmi ekki við. Eitt skiptið bankaði hún upp á hjá okkur til að spyrja okkur ef við hefðum heyrt einhver hljóð af efstu hæðinni. Kommon kona.... Lifðu og leyfðu öðrum að lifa í frið! Við höfðum reyndar heyrt hljóð en sögðum henni það ekki, parið á efstu hæðinni var að rífast, en hvað kemur okkur það við eða henni ef þau rífast eða ekki (kem að því seinna).
Í íbúð 2. býr maður sem ég hugsa að sé komin vel á fimmtugsaldur. Það er ósjaldan sem maður kemur upp stigann að hann stendur í dyragættinni í boxer-nærbuxunum sínum og hvítum ermalausum bol með úfið hárið. Svoldið fríkí fyrst en komst síðar að því að þetta væri meinlausasti maður í öllu Hollandi. Hann kemur frá litlu þorpi utan af landi en flutti til Rotterdam fyrir 11. mánuðum. Hann fer helst ekki út, þekkir fáa og er og hefur alltaf verið einfari. Mér skilst að hann sé alkahólisti en það eina sem maður sér af honum er þegar hann stendur í dyragættinni. Heimildarmaður minn segir að íbúðin hans sé “spotless” hvergi rykkorn að finna og virkilega smekkleg.
Í íbúð 4. (núna erum við sem sagt á okkar hæð og við erum íbúar í íbúð 3) býr heimildarmaður minn, hollensk kona sem er búin að reynast okkur mjög vel. Hún er komin vel á miðjan aldur, svoldið lifuð og eftir því sem mér skilst þá hefur hún ekki átt mjög auðvelt líf fram til þessa. Var gift og á einn son. Hún gekk út úr hjónabandinu eftir að hafa verið barin sundur og saman í 13 ár. Veit ekki alveg hvernig sagan er og langar ekki að vita mikið meira. Núna á hún írskann kærasta sem vinnur á olíuborpalli. Hann vinnur í 3 vikur og er svo heima í 2 vikur. Hann er fyndinn, hræðilega ofvirkur en besta skinn. Þau ferðast mjög mikið því þegar hann kemur heim þá bíður hann henni með sér til sólarlanda viku í senn. Þess vegna hefur hún verið í 3. vinnum síðan við fluttum inn því hún er alltaf að taka sér frí til að fara til útlanda og er búin að missa vinnuna þegar hún kemur heim. Henni finnst það allt í lagi, hún er hamingjusöm og það er fyrir öllu. Í morgun fóru þau til Grikklands.
Í íbúð 5. er að ég held asísk stúlka. Veit ekkert um hana. Hef séð hana 2x. Held að hún sé í skóla hérna.
Í íbúð 6. er parið. Þau eru ensk. Hún vinnur á bar neðar í götunni og hann, já hann, hann hefur ekkert unnið síðan við fluttum inn. Búin að vera inn og út af spítala vegna slagsmála og drykkju. Fyrst var hann handleggsbrotinn og svo er búið að sauma hann sundur og saman í andlitinu síðan. Þau eru ekki mikið meira en 20 – 22ja ára. Þið þekkið týpuna, alltaf fullur og alltaf að slást. Okkur finnst ekki mikið til hans koma og reynum að leiða hann hjá okkur eftir fremsta megni. Tekst ágætlega. Nema þegar við komumst ekki hjá því að heyra hann rífast og dangla í kærustuna sína. Hún er ósjaldan með glóðurauga og sprungna vör. Sorglegt.
Heimildarmaður minn minntist eitthvað á að þau væru að missa íbúðina þannig að fljótlega fáum við kannski nýja nágranna. Verður spennandi að vita hvernig þeir verða.
5 ummæli:
Hæ darling, mikið er gaman að lesa bloggið þitt. Fyrir mér er þetta ævintýraheimur sem ég get ekki beðið með að skoða.
Addr. Bólstaðarhlíð 23 #311 -
105 Reykjvík - ICELAND
Bíð spennt eftir póstkorti... og aldrei að vita nema þú eigir von á einu slíku ;)
hæ rófurnar mínar !
Við höfum það gott - setti heimilisfangið okkar í comment fyrri færslu :)
þar sem ég skilaði svíanum þá hefur maður frekari ástæðu til að kíkja til Hollands. Stefnan er tekin á fljótlega á nýju ári - það eru barasta nebblea bara 99 dagar í jól!!!
og ef það er eitthvað sem ykkur langar í frá ÍSl láta vita - súkkulaði, ópal, harðfiskur, séð go heyrt .... ??
Talandi um nammi. Ef ykkur langar í nammi þá getið þið pantað það á www.nammi.is. Held þeir sendi til útlanda :o) íslenskt og gott ummmmmmm.......
Kv, Bryndís
Elska bloggið þitt - elska þig- sakna þín svo mikið :) Finnst yndislegt hvað þú skemmtir þér vel úti - hlakka til að koma í heimsókn :O)Bið að heilsa Fergal :O)
halló sæta mín :)
mér finnst að þú ættir að byrja núna á bókinni "lífið í skonsunni" þetta er allt eins og í einhverri bíómynd:) hehehe...... þú ert bara snilli í bloggskrifum:)
knús
Elfa og Aron Orri
Skrifa ummæli