Yndislegur dagur í Rotterdam veðurlega séð. Þeir segja að sumarið hafi ekki komið til Hollands í ár. Kvarta um kulda og rigningar. Fyrir mig er þetta yndislegt, hef sem betur fer ekki aðlagast veðrinu ennþá þannig að ég get notið þess að hitinn er bara í 10 – 15 gráðum, Finnst þetta geggjað og fer út á stuttermabol. Ég er skrýtna konan í götunni :)
Það fer að verða aðkallandi að finna aðra íbúð. Sé fyrir mér að við parið verðum búin að drepa hvort annað áður en langt um líður. Erum samt bæði meðvituð um að þetta er bara tímabundið og við vitum að við komust í gegnum þetta. En vá þvílík áreynsla á samband karls og konu að flytja til annars lands. Hvorugt okkar hefur stað til að flýja til ef hlutirnir verða óbæranlegir (ekki einu sinni klósettið þar sem að við deilum því með öðrum).
Get alveg sagt að það er ekki auðvelt þegar pirringurinn lætur á sér bera að búa í lítilli skonsu/stúdíóíbúð. Þú snýrð þér til hægri og sérð hinn aðilann, snýrð þér til vinstri og hvað sérðu? Hinn aðilann! Þú snýrð þér við og hvað sérðu? Hinn aðilann. Úffff og þá lokarðu augunum, en ert tilneyddur til að opna þau aftur og hvað sérðu? Hinn aðilann!
Þessa dagana þá elskum við mánudaga, þriðjudaga, miðvikudaga, fimmtudaga og föstudaga því þá förum við í vinnuna Jippííííííííííí 10 klst í að sjá eitthvað annað en hinn aðilann. Það er gaman að fara í vinnuna.
Enn og aftur takk fyrir öll commentin. Er búin að stilla það þannig að ég fæ þau send í email um leið og þau berast. Þannig að ég þarf ekki að bíða í viku til að sjá þau. Get aftur á móti ekki svarað þannig að ekki halda að ég lesi þau ekki þó ég svari ekki.
1 ummæli:
vóó hvað það er lítið að frétta af mér miðað við Möggu. Búin að skipta um vinnu en bý enn í sömu íbúð og ZERO að gerast í karlamálunum. Gangi þér sem allra best Magga með allar þessar breytingar.
Mér finnst þetta bara fyndið blogg. Önnur vinkona mín fór í gegnum svona tímabil og það var tímabilið sem við vorum ALLTAF í göngu hehhehe. Sjaldan verið jafn fit og þá.
Vona að það líði ekki yfir þig... en ég bloggaði ;)
Skrifa ummæli