Það er stundum erfitt að vera orðin “almennur” starfsmaður eftir að hafa unnið í tölvudeildinni í mörg ár.
Ég fékk loksins tölvuna (eins og ég minntist á um daginn). Fékk þessa fínu tölvu og flatann skjá J eina manneskjan sem er með flatann skjá!!!! Og allir eru grænir af öfund. Myndi finnast mikið til þess koma ef skjárinn væri stærri en 15” hehehehehehe. Hef haft það allt of gott hjá UTS síðastliðin ár.
Mér finnst ég alltaf vera að uppgvötva nýja hluti þessa dagana. Gæti sagt að ég sé að læra alveg heilmikið um sjálfa mig og/eða fólk almennt. Mín helsta skemmtun þessa dagana er að fara á útimarkaði, ekki til að versla heldur til að fylgjast með fólkinu, berast með straumnum, brosandi mínu sólheimabrosi og dillandi mér í takt við tónlistina sem er spiluð í sumum básunum. (Tek Fergal ekki með mér í þessa leiðangra mína, hann er alltaf að flýta sér eitthvað.)
Í gær rann upp fyrir mér að á þessum stutta tíma síðan við fluttum inn í skonsuna þá hef ég takmarkað hversdaginn við eina götu. Götuna sem við búum við. Hef alltaf farið sömu leiðina niður í bæ, í vinnuna, í búðina. Mér var farið að líða aðþrengdir án þess að gera mér grein fyrir því. Þangað til í gær, þá þurfti ég að fara á pósthúsið. Í þveröfuga átt við það sem ég hef alltaf farið.
Mér leið eins og mér hefði verið hleypt út úr búri. Við gönguna á pósthúsið þá víkkaði sjóndeildarhringurinn heilmikið í 10 mínútna göngufjarlægð frá skonsunni fann ég til dæmis, elsta part Rotterdam, Delfshaven, eina hverfi Rotterdam sem ekki var jafnað við jörðu í seinni heimstyrjöldinni. Ég þurfti að bíða eftir því að prammi færi hjá til að ég kæmist yfir vindubrúnna. Ég sá í fyrsta skipti í Hollandi, vindmyllu. Ég fann “ChinaTown” (er reyndar bara ein gata), ég fann einnig hóruhús (fór samt ekki inn). Ímyndið ykkur. Allt þetta í nágrenninu og ég fyrst að finna það út núna. :)
Vissuð þið að í Hollandi er að finna búðir sem selja próteindrykki og svona heilsuræktarpillur og duftmat eins og t.d. Hreysti gerir á Íslandi ? Auðvitað vissuð þið það.... En þið vissuð ekki að í öllum þessum heilsubúðum geturðu farið inn og keypt þér fitubrennslutöflunar þínar og OFSKYNJUNARSVEPPI og fleiri vímuefni.... hélt að ég yrði ekki eldri. En svo náttúrulega eftir smá hugsun þá ákvað ég að verða eldri, “softdrugs” eru lögleg í Hollandi. Þetta er samt eitthvað sem á eftir að taka mig tíma til að venjast.
Írland var BLISS... það var svo gott að koma þangað, eins og að koma heim. Þessir 2 dagar voru notaðir til hins ýtrasta. Lítið sofið. Hittum alla og fleiri sem ég hef ekki hitt áður. Mikið hlegið, talað og grátið. HEHEHEHE já grátið, Happy Tears samt.
Sakna ykkar allra.
Kossar og knús á línuna.
2 ummæli:
Elska að lesa bloggið þitt :o) það kemur mér alltaf í gott skap. Kara var að spyrja hvaða fólk þetta væri með frænku á myndinni. Sagði að þetta væri fjölskyldan hans Fergals. Þá kemur spurningarmerki í augun. Mamma er þau þá öll útlendingar.....
Lovja Kveðja Bryndís
Væri sko til í að skrölta með þér á svona markað... gætum örugglega hlegið og skemmt okkur þar :)
knús og kossar frá Ak.
Skrifa ummæli