laugardagur, 3. maí 2008

Ákall á hjálp.... björgum blogginu!!!!!!!!!!

Eins mikið og mig langar til að halda þessari síðu á lífi... þá ég virðist vera fallin inn í hversdagsleikann þótt hann sé að mörgu leiti frábrugðinn því sem ég hef átt að venjast..... veit samt ekki hverju ég ætti að segja ykkur frá????
Finnst að öllu leiti hallærislegt að þakka þessum og hinum fyrir góðan dag eða gott kvöld...... kannski sérstaklega þar sem að allir þeir sem ég hef samskipti við þessa dagana hafa ekki hugmynd um hvað hér stendur :) Gæti haldið Fjallkonuræðu hérna á hverjum degi en finnst þetta frekar tilgangslaust þ.e.a.s. þetta blogg... er haldin skriftarstíflu..
En eins og áður sagði þá langar mig til að halda þessu á lífi.
Fékk þess vegna þessa frábæru hugmynd! Hvernig væri að þið mynduð skjóta á mig kommentum í spurningarformi? Þ.e.a.s. er eitthvað sem ykkur langar að vita - heyra - eða jafnvel fá komment um???
Endilega látið í ykkur heyra!!

NEED INPUT!!!!

4 ummæli:

Bryndís sagði...

Hæ elsku frænkan mín!
Hvernig gengur að læra Hollenskuna! ertu ekkert búin að koma þér í vandræði með því að segja eitthvað algjörlega út úr kú og þurfa svo að redda þér út úr því :o) Það er eitthvað svo mikið þú hihihihih....
Kiss og knús
Bryndís

Nafnlaus sagði...

Elsku dúllan mín þú mátt ekki hætta að blogga. Hef svo sem enga spurningu til þín sem stendur en skal hugsa málið.
Sumarkveðjur frá Íslandinu
Sunna

Nafnlaus sagði...

Hæ hæ - alls ekki hætta að blogga það væri hræðilegt !!! hvernig er nýja vinnan - ertu búin að breyta - væri gaman að fá aftur lýsingar á vinnufélögunum og hvað maður gerir í Hollandi í hvers dagslífinu er það öðruvísi en á íslandi ? Er kringla, laugarvegur, Kolaportið ? Eru Hollendingar ólíkir íslendingum - er sama stress í gangi og hérna .... Þú veist þetta venjuleg heheh ein sem gæti skrifað heila ritgerð af spurningum - en ætla að láta þetta duga í bili .....Kv, Signý

Nafnlaus sagði...

Jiii, þú mátt ekki hætta að blogga, það er svo svakalega gaman að lesa sögurnar frá þér.

Endilega haltu áfram að skrifa litlar sögur ´r hversdagslífinu hjá þér... mest gaman að lesa þær, þú ert alveg rosalega skemmtilegur penni.

Knús úr Baunalandi.