fimmtudagur, 3. apríl 2008

Hlutirnir gerast hratt

Sjaldan sem ég verð orðlaus en ég er það núna. Aldrei datt mér í hug í morgun þegar ég vaknaði (eftir að hafa sofið yfir mig í akkúrat klukkutíma... tilvitnun í fyrri færslu) að mér yrði boðin ný staða innan fyrirtækisins og að ég myndi taka henni. En það gerðist og vá hvað allt gerðist hratt. Ég er í skýjunum... held ég, góð reynsla og allt það... Er held ég ekki alveg búin að átta mig á þessu.
Meira get ég ekki sagt.... er orðlaus....

3 ummæli:

Bryndís sagði...

Til hamingju!!!!!
Frábært, hlakka til að fá þig heim í sumar, láttu mig vita dagssetningar svo ég geti veitt humarinn :o) tímanlega. Knús og kossar........Bryndís
Miss you!!!!!!!!

Nafnlaus sagði...

vá vá nú er ég forvó!!!
Annars sakna ég þín geggjað og hlakka til að fá þig heim (vildi að ég gæti komið til ykkar en það verður að bíða betri tíma)
Knús til Fergal !
ástarkveðja frá okkur Gabríel

Nafnlaus sagði...

Frábært:O) mamma þín kom einmitt í bankann í dag og sagði mér... æji til hamingju.. hvenær á svo að koma á klakann í smá frí??...

Kveðja
Maggs