fimmtudagur, 3. apríl 2008

Get ekki orða bundist....

Eins og svo margir íslenskir bloggarar í útlöndum þá bara verð ég líka að minnast á þessa tímabreytingu sem átti sér stað núna aðfaranótt sunnudags (alla vegana hérna á meginlandinu).
Klukkutími til eða frá ætti svo sem ekki að breyta neinu fyrir mann, en svo er ekki í mínu tilfelli. Líkamsklukkan er búin að vera klukkutíma eftir á alla vikuna og strögglið við að vakna á réttum tíma er að gera útaf við mig.
Ég er ekki alveg að sjá tilganginn með þessu tímaskarki, það er dimmara á morgnana þegar maður vaknar (alla vegana fyrir þá sem vakna yfirleitt kl 6 (fyrir tímabreytingu)), reyndar er bjartara lengur á kvöldin. En það er eitthvað sem hefði hvort sem er komið sjálfkrafa þegar líður nær sumri. Alla vegna þá er þetta að gera útaf við mig í augnablikinu, finnst þetta ekki sniðugt.

Annars er rosa spenna hérna hjá mér núna, fékk að vita það rétt áðan að mælt var með mér í aðra stöðu hérna innan fyrirtækisins. Allt á fullu bara. Læt ykkur vita um framhaldið ef eitthvað verður.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Almáttugur hvað ég er ánægð að heyra þetta! Er líka í stökustu vandræðum með að tímastilla mig rétt, en þegar ég hef sagt fólki frá þessu er bara hlegið að mér! Og það meira að segja upphátt - "en þetta er bara klukkutími" fæ ég að heyra!

En þessi klukkutími skiptir greinilega meginmáli!