Jæja síðasti dagur þessarar löngu helgar. Fengum reyndar bara 4ra daga þar sem að skírdagur er ekki frídagur hérna í Hollandi. En það kom ekki að sök þar sem af einhverjum undarlegum ástæðum þá líður frítíminn ekki eins hratt hérna og á Íslandinu góða. Kannski að ég sé bara orðin svona róleg og get notið þess að vera í fríi.... loksins.
Það er nú kannski ekki frásögu færandi en við skelltum okkur í betri skóna á laugardagskvöldið. Tilefnið var að einn vinnufélagi minn var með gesti frá USA hjá sér um páskana og ætluðum við að kíkja með þeim á tónleika. Vegna smá miskilnings í fólki þá vorum við of sein til að fá miða. Það var uppselt!!!! Vonsvikinn settumst við inn á barinn við hliðina á tónleikastaðnum og tróðum okkur 10 stykki í sæti og drekktum tárunum í bjór. Eitthvað fannst mér gaurarnir við hliðina á okkur búralegir og svei mér þá ef það var ekki gítarstrengjalykt af þeim. Ég segi í rælni við vinnufélaga minn "ég held að þetta sé hljómsveitin sem situr hérna við hliðina á okkur!!" hún snýr sér að þeim með það sama og segir þeim frá vonbrigðum okkar yfir að við skyldum ekki fá miða. Þessir gítarstrengjalyktandi góðu drengir í Alamo Race Track sögðu að það væri nú lítið mál að koma okkur inn, við myndum bara labba inn með þeim sem sérstakri gestir hljómsveitarinnar :D. Kvöldið varð hið besta, langt síðan við höfum skemmt okkur svona vel.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Frábært!!! þessir hljómsveitardúddar eru bara bestu skinn!!!
Skrifa ummæli