þriðjudagur, 25. mars 2008

Skammvinn gleði

Ég var yfir mig hamingjusöm í morgun þegar ég vaknaði og leit út um gluggann. Allt hvítt, nýfallinn snjór allstaðar og það snjóaði enn. Reyndar ekki mikill snjór en svona kannski ca 2 cm jafnfallinn :). Hoppandi kát stökk ég í sturtu og skellti mér í fötin og var um það að hendast út um dyrnar þegar þær opnast og inn kemur Fergal. Öllum lestarferðum var aflýst í morgun vegna snjósins @#$#$%&&#"#""@@@@!!!!!!!!. Get svo svarið fyrir það!!!!!!!! Ég skrönglaðist í vinnuna (þurfti reyndar að stóla á almenningssamgöngur þar sem að hjólið mitt varð eftir í vinnunni á fimmtudaginn) tók mig ekki nema 1 og 1/2 tíma því umferðin var hræðileg og bílar út um allt á hraða snigilsins!!!!
Get svo svarið fyrir það, væri ennþá hamingjusöm með snjóinn ef það væri ekki fyrir þá staðreynd að þetta land lokast ef það kemur smá snjóföl!!!!!!!

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

- ef þú bara sæir snjóinn hérna hjá okkur!! Keyrði til AK í gær þannig að ég varð að stoppa á milli stika í Víkurskarðinu :o) svaka hasar!!!