mánudagur, 19. nóvember 2007

Í vinnunni

Þar sem maður er mikill þrákálfur og stundum ekki að sætta sig við hlutina eins og þeir eru þá hef ég ítrekað reynt að blogga út vinnunni. Þeir læstu síðunni stuttu eftir að ég byrjaði en hafa núna opnað fyrir aðgang aftur (er harð ákveðin í því að notfæra mér það til hins ítrasta áður en læst verður aftur). Jippíííííí

Í dag er mánudagur og þá er yfirleitt rólegt hjá mér í vinnunni og ég á smá stund fyrir sjálfa mig. Í augnablikinu er ég að bíða eftir hádegismatnum þar sem að ég er gjörsamlega aðframkominn úr hungri. Eins gott að það verði eitthvað gott að borða.

Það er fyndið hvað maður tekur upp á þegar maður flytur til útlanda. Ég skildi alla geisladiskana mína eftir á Íslandinu góða en á þó nokkuð af tónlist á tölvunni. Það eina sem ég hlusta samt á þessa dagana er Vilhjálmur Vilhjálmsson :) og syng með í hljóði. Hugsa að ég hefði ekki hlustað á hann eina mínútu ef ég væri ennþá á Íslandi.
En svona er þetta nú, Ragga í Hollandi með Villa Vill í eyrunum. Hann er góður.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ég er með George Jones í eyrunum og gólandi hund úti í garði, hundurinn er ástfanginn og ég neita honum um að fara á kærustu flakk, og George Jones er frægur country singer!...úúúúú..og meira úúúú..takk fyrir að blogga ragga, kv Björk

Nafnlaus sagði...

Hæ elskan - Villi Vill er flottur gaur :) gaman að sjá svona stutt á milli blogga :O)