föstudagur, 16. nóvember 2007

Nýir tímar

Í Hollandi gerist voða fátt í dag. Það tekur allt sinn tíma. Ég pantaði internettengingu og heimasíma í nýju íbúðina þegar við fluttum (jább við erum flutt úr skonsunni og búum núna í höll að mínu mati) en var sagt að það gæti tekið um eða yfir 3 vikur. Til að gera langa sögu stutta þá bíðum við enn, en þar sem að mér er farið að líða svo vel heima hjá mér þá fer ég mjög sjaldan út með tölvuna mína (hefur ekki gerst síðan ég flutti úr skonsunni) á kaffihús til að komast á netið. Þannig að bloggleysi síðustu vikna er ekki vegna þess að allt er ömurlegt (eins og kannski síðasta færsla ber vott um) heldur vegna þess að mér/okkur líður loksins vel.

Við búum núna í norður Rotterdam í hverfi sem kallast Hillegersberg. Hillegersberg hefur orð á sér að vera ríka hverfið í Rotterdam. Við búum alveg á landamærunum þannig að við erum ekkert ”posh”. Hillegersberg var áður fyrr þorp sem var stofnað á miðöldum (eru þorp ekki stofnuð?) en 1941 var það sameinað Rotterdam.

Ég bý núna nær vinnunni en það tekur mig samt lengri tíma að komast í vinnuna en áður c.a. 45 mín. til 1 klst. x2 á dag með sporvagni, tveimur jafnfljótum og svo metro. Planið er að kaupa hjól þar sem að það tekur ekki nema ca. 20 mín. til 30 mín að hjóla. Við erum líka fjær miðbænum en það eru 2 sporvagnar sem við getum tekið beint í miðbæinn og það tekur Fergal ekki nema 20 mín að labba (hef sjálf ekki prófað það en hugsa að það myndi taki mig ca. 30-40 mín.)

Fyrstu dagarnir í höllinni voru fremur frumstæðir. Það var bara dína og sjónvarp en það var samt ljúft. Við skelltum okkur svo í ”Notað og Nýtt” til að kaupa sófa og sófaborð. Gengum um búðina og flengdum okkur í hvern sófann á fætur öðrum, mældum og vigtuðum þar sem að við búum á ”3ju hæð” (á hollensku búum við á 2ri hæð) og stiginn er brattur (ekki samt eins brattur og þröngur og var í skonsunni). Við vorum búin að reikna það út að við kæmum léttilega 2ja sæta sófa upp stigann þannig að planið var að kaupa tvo 2ja sæta.
Eftir miklar pælingar á 2ja sæta sófum þá sest Fergal í bláann 3ja sæta leðursófa, og það var ekki aftur snúið fyrir hann. Hann fékk mig til að prófa og ég get svo svarið það (þótt mér hafi ekki fundist hann fallegur) ég gjörsamlega bráðnaði. Æsingurinn varð svo mikill að við gleymdum að mæla og vigta og fórum og borguðum hann.
Viku seinna var sófanum svo skellt á stéttina fyrir framan húsið okkar og við í viðbragðsstöðu að bera hann upp. Til að gera langa sögu stutta þá tók okkur 3 klukkutíma, rifrildi og mikinn pirring að koma sófanum upp. Á þessum þremur tímum hringdum við í búðina og vildum skila honum þar sem að hann komst ekki upp stigann, þeir sögðu nei. Fergal tók fram sögina sína og ætlaði að saga sófann í sundur og búa til 2 stóla úr honum (hann sagaði smá bita úr honum) og ég hljóp út í búð og keypti verkfæri til að geta skrúfað hann í sundur. En upp fór hann loksins í tveimur hlutum og það var dansaður stríðsdans af fögnuði. Hann er þvílíkt kósý (hann er ennþá sófi ekki tveir stólar).

Við erum búin að fá fyrstu heimsóknina. Þórunn systir og Geiri mágur komu í helgarferð og það var svooooooooo gaman að fá þau (er nú ekki búin að segja þeim það en það féllu þónokkur tár eftir að þau fóru, alltaf sama litla hjartað þótt líkaminn sé stór). Takk Þórunn og Geiri fyrir frábæra helgi.

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hæ elskan!
Gott að allt gengur vel. Og til hamingju með nýja íbúðina og auðvitað nýja sófann. Þórunn sagði mér að það hefði verið æðislegt í heimsókn hjá ykkur. knús og kossar.
Heyrumst fljótlega
kveðja Bryndís

Nafnlaus sagði...

Hæ hæ - ógeðslega glöð að lesa blogg frá þér - var ekkert farið að standa á sama um alla þessa þögn. Ekki það ég kann nú á síma hahaha :O) Gaman að heyra hvað nýja íbúðin er æðisleg - hlakka til að koma í heimsókn og prufa nýja sófann :D

Nafnlaus sagði...

og hún baulaði og strákurinn fattaði hvar hún var. Ég sá ykkur fyrir mér í stiganum, ..átti eins stund hér með ísskáp í vor hér í Manitoba, það var bölvað og ýtt og ragnað og pirrast...merkilegt. til lukku með íbúðina vinkona, ps: vona að þér og Fergal verði boðið í brúðkaupsveislu hjá Mark og Audrey næsta sumar.!

Nafnlaus sagði...

gleymdi að nefna að Ásdís á Hólmavík gerði það sama og þið, skellti sér á draumasófann og svo komst hann ekki inn um neina hurð á húsinu...hún skellti honum þá bara í gegnum stofugluggann og enn í dag eru stofuglugginn í skralli með poka í staða glers, Alex varð vitni að þessum aðförum og sagði þessi orð:"Í Þýskalandi þegar við kaupum sófa þá mælum við allt fyrst til að athuga hvort hann komist inn í húsið". Já Þjóðverjar eru snjallir!