Varúð!!!!!
Áður en þið byrjið að lesa þá verð ég að taka það fram að ég er ekki alveg í besta skapinu í dag. Ef þið skynjið neikvæðann tón úr skrifum mínum, þá vinsamlegast lesið ekki of mikið úr því. Þið hugsið væntanlega “af hverju ertu þá að skrifa ef þú ert ekki í skapi til þess?” . Þá svara ég, “ævintýri hefur bæði góða hlið og slæma hlið og þetta blogg er tileinkað slæmu hliðinni”.
AAAAARRRRRRRGGGGGGGGG!!!!!!!!
Ég er að verða geðveik hérna!!!!!!!
Skítaholan sem ég bý í versnar dag frá degi. Standandi partý alla daga nema um helgar. HELVÍTIS SKÍTAPAKK, ekki hægt að klaga í drullusokkinn sem á húsið því að við erum leiðinlega fólkið sem ætlast til einhvers af honum.
Klósettið útmigið og skitið af einhverju andskotans pakki sem er þarna inn og út alla daga vegna þessa helvítis partýstands.
Erum búin að vera að skoða íbúðir, reyndar bara tvær. Þessi fyrsta var ekkert spes og hefði kostað okkur fúlgur í að hita upp því gluggarnir eru svo óþéttir. Skoðuðum íbúð 2 á fimmtudaginn sem er á góðum stað og á þokkalega góðu verði. Yndislega íbúð alveg, tilbúin til innflutnings með þvottavél og alles. (Verð að útskýra þetta með tilbúin til innflutnings því hérna í Hollandi eru flestar leiguíbúðir þannig að leigjendur ganga inn í íbúðirnar fokheldar. Þurfa að setja gólfefni og ljósafestingar, mála og þess háttar. Svo þegar þeir segja upp leigunni og flytja eitthvað annað þá taka þeir allt með sér. ALLT.)
Fór svo á leigumiðlunina í gær og við getum fengið íbúðina en nei, sumir vilja skoða fleiri íbúðir “af því að það gæti verið eitthvað betra einhvers staðar annars staðar”. Það eitt er að gera mig brjálaða í dag líka. Þessi andskotans hugsanaháttur að það gæti verið eitthvað betra hinum megin við hornið. Og vera svo upptekin af því að allt sé grænna hinum megin að sjá ekki tækifærin þegar þau gefast. ANDSKOTANS HELVÍTIS
Nýjar myndir í albúminu
9 ummæli:
Hæ hæ!
Gaman að sjá nýjar myndir.
Vona bara að þetta gangi með sætu íbúðina og að næstu fréttir verði að þið séuð flutt inn.
Gangi ykkur vel.
Kveðja Bryndís
Vona að sumir átti sig ... og að þið komist sem fyrst í burtu frá skítapakkinu !!!
kv. Lauga
Hæhæ
Fann gamalt e-mail með slóðinni á bloggið þitt, þegar ég var að taka til í tölvunni.
Gaman að fylgjast með hvað er að gerast útí RTM.
Annars er ég ekkert á leiðinni þarna út nokkuð í bráð þar sem ég er hætt hjá Eimskip! Hlutirnir breytast hratt!
Anyways, ég veit um einhverjar svona apartment complexa þar sem flestar íbúðirnar eru í leigu. Eitthvað fyrirtæki sem sjá um að leigja þetta út. Skoðaði eina íbúð hjá íslenskri stelpu og þetta var mjög fínt alltsaman. Staðsetningin er hinumegin við stóru götuna þar sem Erasmus University er og Novotel. Þannig að það er nokkuð central bara.
Get komist að því hvað fyrirtækið heitir sem leigir þetta út, ef þú vilt.
kv
Pálína
Hæ tetta gengur allt vel.
Bestu kvedur tin systir.
Við viljum fara að heyra frá þér dama....
Halló halló ertu alveg hætt að blogga - farin að sakna þess að sjá ekkert frá þér og heyra hvernig gengur :o) Hugs and kissess Signý
Já ég segi það sama! Við viljum fá bloggfærslu frá Röggu sætu...
Maður saknar þín sko helling, er með smá mótþróa útaf Eggerti sko, ég á að vera löngu búin að halda hann en það bara vantar þig vinkona!!!
Já hvað er þetta með Eggert Birgitta ???SKAMM SKAMM
En Ragga koma svo .... þú verður bara að fara að senda út vikulegt fréttabréf eða eitthvað, maður er alveg orðin röggufréttaveikur sko :O)hugs and kisses...
Baulaðu nú Búkolla mín hvar sem þú ert?
Skrifa ummæli