föstudagur, 4. maí 2007

I Feel Like "Ragga" Tonight!

Eftir vinnu í dag á að brydda aðeins upp á hversdagsleikann með helgarferð til Akureyrar.
Það verður stuð.
Farið verður á nýja bílaleigubílnum sem ég fékk í skiptum fyrir rauða bílaleigubílinn (af því að hann var á nagladekkjunum).
Ég sem sagt hringdi í bílaleiguna út af nagladekkjunum og þeir segja "já koddu bara, við skiptum um þetta bara meðan þú bíður" og vitið þið bara hvað, þegar ég mæti þá fæ ég bara annan bíl á sumardekkjum í staðinn.
Það væri ekki slæm veröld ef maður gæti leyft sér það í lífinu að eiga einn vetrarbíl og annan sumarbíl. Ekkert vesen með dekkjaskipti eða umfelganir, uuuuuuummmmm góð tilhugsun.

Að allt öðru, hafið þið skoðað "The Advertising Slogan Generator"? Þetta er algjör snilld, ef þetta lyftir ekki á manni munnvikjunum þá veit ég ekki hvað gerir það.
Til að ná munnvikjunum eyrnanna á milli prufið þá endilega líka "The Movie Quote Generator" bara snilld.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

how was Akureyri...Bara eintóm rómance:P