Í dag er ekki nema mánuður í síðasta vinnudag, CV"ið" er svo til tilbúið og verður sent út eftir nokkra daga, pappakassarnir eru komnir í hús og núna verður tekið á því (um leið og ég læt verða af því að ná mér í límband ;) )
Ég er alveg hryllilega spennt yfir þessu öllu saman. Mér finnst ég standa nakin á klettasyllu með bundið fyrir augun og aðeins eitt skref.... og ég mun falla eins og steinn niður í óvissuna.Vííííííííííííííííííííííííííííííííííííííííííííííííííííííííííííííííííííííííííííííííííííííííííííííííí get ekki beðið, því það er aldrei að vita hvað ég mun finna og hvað ég mun gera.
1 ummæli:
Þetta á eftir að vera svo frábært hjá ykkur!!! ég er svo ánægð með að þú skulir láta verða af þessu og ég veit að þú átt eftir að "have time of your life"
Skrifa ummæli