Ég komst fljótt að því eftir að ég byrjaði hjá þessu fyrirtæki að það segir aldrei neinn neitt nema undir rós ef það er eitthvað sem kemur við kaunina á þeim eða jafnvel ef einhver treður á tánum á þeim. Þetta hefur farið hrikalega í taugarnar á mér og einn daginn þá voru það mínar tær sem var reynt að troða á og ég fékk nóg. Ég lét viðkomanda heyra það. Mörg orð voru sögð (vil ekki hafa þau eftir hérna, er ekkert voðalega stolt af orðavalinu, en meiningin komst til skila) en endaði ræðuna á því að segja "Þú ert tík og það sem meira er, ég er íslensk og ég meina það sem ég segi"
Ekki gerði ég mér grein fyrir því þegar þessi setning var sögð að þetta yrði til þess að núna vita allir að ég er sú íslenska og fæ klapp á bakið fyrir það.
Að allt öðru... veðrið er búið að vera alveg yndislegt síðustu vikur og ég alltaf að komast að því betur og betur hversu hæfileikarík ég er og er alltaf að bæta mig. Til dæmis þá get ég hjólað í þröngu pilsi :D án þess að sýna klofbótina. Það tók nokkra daga að venjast en eftir ómæld flaut, hlátrasköll og annað tilheyrandi þá tókst þetta á endanum. Hef ekki hingað til verið þekkt fyrir mikinn kvenleika en ættuð að sjá mig núna ;) því galdurinn við að hjóla í pilsi er að hjóla með hnéin saman. Ekkert kvennlegra en það.
Annars reiknaðist mér til að ég hjóla ca 100 km á viku til og frá vinnu sem gerir ca 400 km á mánuði. Fyrir þetta borgar fyrirtækið mér ca 7000 kr á mánuði. Ekki slæmt að fá borgað fyrir að hreyfa sig. Það koma nú stundum dagar sem ég hugsa mér að taka lestina en læt mig samt hafa það og þá er útkoman svona þegar maður mætir.
Já svona á meðan ég man. Ég er að leggja í smá ferðalag núna 6. júní fram til 20. júní. Við sjáumst vonandi því ég verð á Íslandi.
2 ummæli:
Guð hvað ég hlakka til :) get ekki beðið eftir því að fá að sjá þig !!!!kv, signý
haaalló halllóóóó juuuuminn hvað ég hlakka til að knúuúúúsa þig!!!! hvort á maður að leggja land undir fót og koma suður eða kemur þú eitthvað norður???????????????????
Skrifa ummæli