Jæja.... árið 2008 gengið í garð. Við enduðum árið hérna í Rotterdam á rólegann hátt. Stigum aðeins útfyrir rétt fyrir miðnætti til að sjá flugeldana. Sáum fljótlega að við myndum ekki sjá mikið því reykjarmökkurinn lá yfir borginni, alveg blankalogn. Sprengingarnar og læti eftir því. Löbbuðum aðeins hérna neðar í hverfið og ég verð að viðurkenna að mér varð eiginlega um og ó. Fólk skaut upp flugeldum af tröppum útidyra, kínverjabeltin lágu í metravís á miðri götunni, kampavíns tappar flugu og alls konar flugeldaafgangar ringdu yfir okkur. Hávaðinn bergmálaði milli húsa (ekki eru göturnar breiðar hérna) og brennur kveiktar á götunni til að brenna upp ruslið sem til féll. Slökkviliðsbílar á hverju götuhorni með sírenur kveiktar, bílar í þrautakóng eftir götunum, milli kínverjabeltanna, flugeldanna og brennanna. Algjör geðveiki. Eins og að vera í stríðsþjáðri borg eiginlega því ég var drulluhrædd að labba þarna eftir götunni.
Á nýjársdag fórum við svo í dagsferð til Amsterdam. Mitt fyrsta skipti í Amsterdam, vildi óska þess núna að ég hefði valið annan dag til Amsterdam ferðar heldur en nýjársdag því ég get ekki sagt að ég hafi verið hrifinn. Borgin minnti mig Herjólfsdal á mánudegi eftir þjóðhátíð. Ruslið!!! Og meirihluti vegfarenda mjög líklega ennþá í því frá kvöldinu áður. Ég hef samt sem áður ákveðið að gefa Amsterdam annan sjens.
Mér tókst aftur á móti að eyðileggja símann minn í þessari ferð. Var á lestarstöðinni á harðahlaupum að ná lestinni með símann í vasanum á jakkanum (yfirleitt er hann nú í töskunni) og áður en ég get nokkuð gert sé ég hvar síminn flýgur framfyrir mig og skellur í gólfinu og þaðan skaust hann niður á lestarteinana. Til að gera langa sögu stutta þá fann ég batteríið og bakhlutann en síminn sjálfur var hvergi sjáanlegur þó svo að minn yndislegastur hafi stokkið niður að lestarteinunum til að leita. Rétt náðum lestinni. Þannig að kæru lesendur ég varð að kaupa mér síma # 2 síðan við komuna til Rotterdam og verða mér út um enn eitt nýtt númerið.
Fyrir þá sem vilja þá er nýja númerið: 00 31 91 901 8000
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Gostei muito desse post e seu blog é muito interessante, vou passar por aqui sempre =) Depois dá uma passada lá no meu site, que é sobre o CresceNet, espero que goste. O endereço dele é http://www.provedorcrescenet.com . Um abraço.
Mæli eindregið með að þú gefir Amsterdam annan séns - rusl á götum og úreltar fyllibyttur eru ekki það sem ég upplifi á mínum rúntum um miðborgina!
Endilega láttu mig vita ef þér dettur í hug að koma, væri gaman að hittast í einn bolla eða svo! :)
Skrifa ummæli