fimmtudagur, 13. desember 2007

Það sem af er desember.

Ég fékk bréf og súkkulaði frá Sinterklaas x2 :) Verð að deila með ykkur öðru bréfinu.

Every year on the 5th of December
there is an ancient guy with a long white beard we remember

He gives presents to people if they have been sweet.
Otherwise you will be taken back with him to Spain indeed!

Since you have been nice,
Sinterklaas decided to also give you a surprise!

So enclosed is something sweet to eat,
It is a delicious SinterKlaas treat!

We hope you enjoy this chocolate letter
On the 5th of December nothing tastes better!

Enjoy and best regards,
Sinterklaas & Zwarte Piet

Hefði ég vitað að ég fengi spánarferð fyrir að vera óþæg þá hefði ég ekki hugsað mig tvisvar um!!
Með bréfinu fylgdi súkkulaðistafur, fékk s.s. risa súkkulaði R.

Svo í gær þá fengum við tölvupóst frá starfsmannadeildinni um að við gætum komið milli klukkan 10 og 11 til að ná í jólagjöfina. Langt síðan ég hef fengið fyrirtækisjólagjöf (þar sem að það tíðkaðist ekki á síðasta vinnustað) þá spenntist ég öll upp og var fyrst á staðinn. Váááááá segi ég nú bara, aldrei fengið eins veglega jólagjöf. Fullt af einhverjum ítölskum mat, salatskál, pizzadiskur og eldfast lasagnamót. Salatáhöld, hvítvín, happdrættismiði og fleira og fleira. Þetta var allt saman í stórum pakkakassa (svona "hringja dyrabjöllunni með olnbogunum kassi) og níðþungur í þokkabót. Ég þakkaði henni "lukku" minni að ég fékk far heim því nóg var nú vesenið að koma þessu upp stigann :) hefði ekki boðið í strætó-, neðanjarðarlestar- og svo sporvagnaferð með þetta í örmunum.


Á morgun er svo jólapartýið fáum mat og drykk frá kl. 18 til 00:30. Getið nú rétt ímyndað ykkur hvar ég verð þegar frítt er annars vegar :)
Annars hlakkar mig mikið til og búin að liggja í brúnkukreminu alveg út í eitt (síðan í gær, þegar ég uppgvötvaði að litarhaftið passaði ekki alveg við gull litaða bolinn sem keyptur var á slikk fyrir partíið) plokkaði á mér augabrýrnar (já, þið sem þekkið mig, þá plokkaði ég á mér augabrýrnar alveg sjálf og það tókst alveg þónokkuð vel ef ég segi sjálf frá, og ekki nærri því eins vont núna og það hefur alltaf verið. Held það sé aðallega vegna þess að ég er ekki alveg viss um hvert ég ætti að fara til að láta vaxa þær, þannig að ég varð að duga eða blindast af augnabrúnum!!!)

Síðast en ekki síst er það rúsínan í pylsuendanum :)
Það er búið að bjóða mér fast starf hjá fyrirtækinu þannig að ég þarf ekki að hafa áhyggjur af því að verða atvinnulaus í febrúar. Ég náttúrulega tók því fegins hendi, ég mun flytjast til innan deildarinnar og sinna öðru starfi en ég er að sinna núna og byrja í þjálfun núna í janúar. Ég mun ekki þurfa að tala dönsku nema 2 daga í viku. En aðal málið er samt að fá að takast á við eitthvað nýtt.

Vona að þið hafið haft það sem best það sem af er aðventunnar og eigið góða komandi daga.
Kiss kiss og knús ;)



4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hey þú sætust!!
alltaf yndislegt að fá pakka..en annars hvað er svo heimilisfangið ykkar:O)
Love yah
Max

Nafnlaus sagði...

Hey þú sætust!!
alltaf yndislegt að fá pakka..en annars hvað er svo heimilisfangið ykkar:O)
Love yah
Max

Nafnlaus sagði...

Ohh æðislegur pakki, fékk alveg slef tilfinninguna þegar ég sá hann. En til hamingju með vinnuna finnst þetta frábært :O):O) Bið að heilsa knús og kossar Signý

p.s. er að safna fyrir ferðinni til þín -- hvenær eru útsölur haha

Guðrún K. sagði...

Til hamingju með þetta allt saman - vinnuna - jólagjöfina og augabrúnirnar!!!!
Vona að þú hafir skemmt þér vel í partíinu mín kæra og komið heil heim ;) (minnist jólateitis úr fyrri vinnu... )

knús til ykkar beggja