Ég eiginlega trúi því ekki að það séu komin jól, kannski vegna þess að enginn er hamborgarhryggurinn í ískápnum eða ilmur af sjóðandi hangikjöti í loftinu. Engin skötulykt til að fussa yfir og engir pakkar eða kort sem á eftir að keyra út þann 24. desember. Allt eru þetta fyrir mig merki þess að jólin eru gengin í garð.
Þó svo að fattarinn er ekki að skynja jólin þá svona vegna þess að dagatalið segir mér að það séu að koma jól, þá er ég nú samt búin að þrífa allt og ganga úr skugga um að jólakötturinn nái ekki að festa klónum í okkur með því að kaupa jólafötin. Við erum búin að fara á markaðinn til að versla í jólamatinn (enginn Bónusferð þetta árið heldur). Á markaðnum festum við kaup á 3,5 kílóa kalkún og öllu því meðlæti sem tilheyrir. Við verðum 2 í mat þannig að við endum árið og byrjum það næsta á því að borða kalkúnasamlokur í öll mál (las einhvers staðar að 3-4 kílóa kalkúnn væri mátulegur fyrir 6-8 manns (þetta var sá minnsti sem við fundum)). Deginum á morgun verður svo eytt í dúll og afslöppun því jólin verða haldin að írskum sið þann 25. desember.
Þið sem eigið svo gott að geta drukkið malt og appelsín um jólin megið alveg drekka eitt glas fyrir mig ;)Ég sendi ykkur öllum mínar bestu jólakveðjur og vona að þið hafið það gott.
Prettige Kerstdagen en Gelukkig Nieuwjaar
3 ummæli:
"Lausnarinn góði, lífsin sól
ljómi þér heitt um þessi jól
hjartafriðinn færi þér
og fögnuðinn sem aldrei þver"
Gleðileg jól elskurnar mínar og Guð geymi ykkur.
Ástarkveðja
Guðrún og Gabríel
Gleðileg jól, elsku frænka!!
Guðný, Róbert og stelpnagerið í Álaborg
gleðileg jól elskan :) Vona að þið hafið átt yndislega jólastund. jólakveðjur af Kambsvegnum :)
Skrifa ummæli