fimmtudagur, 2. ágúst 2007

Líður eins og í bíómynd!!!!

Sit á risastórum bar/veitingastað sem stendur við tvær stórar götur, sit við stórann glugga sem opnast allur, eins og ég sitji nánast úti. Fyrir utan gluggan eru tugir borða og öll eru þau upptekin, það er skvaldur á alla kanta eins og í fuglabjargi. Framhjá fer fólk á hjóli, í sporvögnum, í strætó og einkabílum og svo auðvitað gangandi. Suður-amerísk tónlist í hátölurunum í bakgrunni. Allt iðandi af lífi og mitt í þessu öllu sit ég pikkandi á tölvuna, sötra bjór og reyki.

Fyrsti dagurinn í vinnunni liðinn. Gekk rosalega vel, var farin að tala smá dönsku í enda dagsins :)
Vinnan sem slík virðist ekki vera mjög flókin, en samt fullt af smáatriðum sem þarf að huga að.
Enska er aðal tungumálið á milli starfsfólks. Ca 30 manns að vinna í deildinni og þessir 30 manns koma frá 16 löndum. Þannig að þetta er mjög alþjóðlegt.
Skrýtnast við þetta allt saman er að vera flutt til Hollands, byrjuð að vinna, tala 2 tungumál í vinnunni og hvorugt þeirra er hollenska :)

Við erum búin að koma okkur ágætlega fyrir í íbúðinni og fyrsta máltíðin var elduð í kvöld og borðuð með bestu list. Eins og Fergal orðaði það "This is great, you can eat and there is more food waiting for you if you´re still hungry" Greyið orðinn frekar leiður á kebab og dönner máltíðum frá tyrkjabúllunum :)

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með þetta allt saman - ég er ekkert smá glöð fyrir ykkar hönd :O)

Guðrún K. sagði...

Vildi ég væri hjá þér mín kæra á þessum stað - að sötra bjór og fylgjast með mannlífinu.... knús til ykkar Fergals frá okkur Gabríel :)

Guðrún K. sagði...

Vildi ég væri hjá þér mín kæra á þessum stað - að sötra bjór og fylgjast með mannlífinu.... knús til ykkar Fergals frá okkur Gabríel :)

Nafnlaus sagði...

OHhh... hvað það er gott hvað allt gengur vel hjá þér elsku Ragga okkar, ert náttla bara flottust og duglegust allra.
Við erum kominn heim og erum að rembast við að koma okkur fyrir í nýja húsinu okkar.
Heyrumst vonandi fljótt,
knús og kossar frá Ak.