föstudagur, 15. júní 2007

Blendnar tilfinningar

Vá hvað tíminn líður hratt þessa dagana. Það er eiginlega ekki hemja, á bara eftir að vinna eina viku í viðbót og þá hefst gamanið.
Ég er á fleygiferð í tilfinningarússíbananum þessa dagana, spennan og gleðin eiga samt vinninginn en það örlar alveg á smá hræðslu og ofsahræðslu inn á milli og ég tala nú ekki um kvíðahnútinn.
En hvað um það, vitið þið um einhvern sem vantar þvottavél fyrir lítinn pening eða langar í X-box vél + nokkra leiki? Endilega ef þið vitið um einhvern látið mig vita ;)

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hvað ætlarðu að selja X-boxið á?
Veit mögulega um kaupanda :-)

Ragga sagði...

Guðný: X-boxið er selt, vantar núna bara að losna við þvottavélina

Nafnlaus sagði...

jæja, þá nær það ekki lengra... er með eitt ágætiseintak af þvottavél hérna :-)